Fara í efni

11.000 hafa leitað til VIRK

Til baka

11.000 hafa leitað til VIRK

Um áramót voru rúmlega 2.000 einstaklingar í þjónustu hjá VIRK, 8% fleiri en um síðustu áramót, þrátt fyrir að nýjum í þjónustu hafi fækkað um 7% milli ára. Alls hafa 11.000 einstaklingar leitað til VIRK frá stofnun starfsendurhæfingasjóðsins árið 2008.

Í lok árs 2016 voru 2.034 einstaklingar í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK en alls hafa 11.004 einstaklingar leitað til VIRK frá upphafi. 6.221 einstaklingar hafa lokið þjónustu, útskrifast, frá VIRK og rúmlega 70% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift.

1.673 einstaklingar komu nýir inn í þjónustu hjá VIRK á árinu 2016, um 7% færri en árið 2015 þegar þeir voru 1.793 talsins. 1.111 einstaklingar luku starfsendurhæfingarþjónustu árið 2016, 18% færri en 2015 þegar 1.346 útskrifuðust.

Aðsókn að VIRK hefur náð jafnvægi eftir mikinn vöxt, sem fylgdi mikið uppbyggingar- og þróunarstarf sem skilað hefur sér í m.a. auknu samstarfi við lífeyrissjóði, heilbrigðisstofnanir, félagsþjónustu sveitarfélaga og fleiri aðila, en til VIRK leitar nú stærri hópur en áður með fjölþættan og flókinn vanda.

Eins og áður segir þá eru rúmlega 70% þeirra einstaklinga sem hafa lokið þjónustu hjá VIRK með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám. Árangur og ávinningur af starfsemi VIRK - fjárhagslegur og samfélagslegur - er mjög mikill þar sem hún hefur á undanförnum árum skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði.

Þetta hafa utanaðkomandi aðilar staðfest en niðurstöður athugunar Talnakönnunar sýna að ávinningurinn af starfsemi VIRK á árinu 2015 hafi numið um 13,8 milljörðum króna. NIðurstöður fyrri athugana Talnakönnunar sýndu að ávinningur af starfi VIRK var 11,2 milljarðar króna 2014 og 9,7 milljarðar á árinu 2013. Þá sýna þjónustukannanir VIRK að þátttakendur eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu.

Sjá nánar í samantekt um VIRK Starfsendurhæfingarsjóð.


Fréttir

30.04.2024
30.04.2024

Hafa samband