Fara í efni

Bókarýni - Á eigin skinni: Betri heilsa og innihaldsríkara líf

Til baka

Bókarýni - Á eigin skinni: Betri heilsa og innihaldsríkara líf

Kristín E. Björnsdóttir sviðsstjóri fjármála hjá VIRK

 

Bókin Á eigin skinni - Betri heilsa og innihaldsríkara líf eftir Sölva Tryggvason kom út í upphafi árs 2019 hjá Sögur útgáfu. Bókin er í kiljuformi, 215 blaðsíður að lengd og skiptist í 20 kafla auk heimildaskrár.

Í bókinni lýsir Sölvi því þegar hann missti heilsuna fyrir um áratug síðan. Við tók langt og strangt ferli við að ná heilsu á ný og fjallar bókin um þá vegferð Sölva. Í leiðinni gefur hann bæði þeim sem áhuga hafa á heilbrigðu líferni og þeim sem glíma við einkenni lífsstílssjúkdóma praktískar upplýsingar og góð ráð í átt að betra lífi.

Í upphafi bókarinnar er lýsing á aðdraganda þess að heilsa Sölva hrundi, þrautagöngu hans á milli lækna og í kjölfarið leiðinni til bata. Hraður lífsstíll Sölva með tilheyrandi streitu og álagi fór að segja til sín fyrir um tíu árum síðan, bæði líkamlega og andlega og við tók tímabil þar sem ótal læknar rannsökuðu hann til að komast að því hvað amaði að. Sífellt nýjar greiningar kölluðu á alls konar lyf sem þó skiluðu takmörkuðum árangri. Það kom að því að Sölvi ákvað að taka málin í eigin hendur.

Nálgun Sölva var að lesa fjöldann allan af bókum um heilsu og prófa á sjálfum sér hvort og þá hvað virkaði. Í þessu ferli sem varði næstu árin neyddist hann til að endurhugsa daglegt líf sitt og margoft þurfti hann að taka eitt skref til baka áður en hann komst tvö skref áfram. En það kom loks að því að einbeittur vilji Sölva að ná heilsu skilaði sér í að honum leið vel og hann fann fyrir gleði og þakklæti.

Það var svo fyrir um ári síðan að Sölvi fann fyrir mikilli þörf að miðla þeirri þekkingu og reynslu sem hann hafði viðað að sér á undangengnum árum. Eftir að hafa lesið ótal heilsutengdar bækur taldi hann vanta bók sem fjallaði heildstætt um heilsu og væri allt í senn praktísk, byggð á reynslu og með fræðilegan bakgrunn. Þetta er meginviðfangsefni bókarinnar, þ.e. hvað getum við gert til að bæta heilsuna og þar lýsir Sölvi sínu eigin ferðalagi, sumt sem hann fjallar um hefur hjálpað honum tímabundið, annað er orðið hluti af hans daglegu rútínu.

Það sem að mati Sölva skiptir sköpum þegar kemur að því að ná jafnvægi í líkamanum og bættri heilsu eru minni bólgur, jafn blóðsykur og bætt melting og lykilþættir í að koma fyrrgreindum þáttum í lag eru næring, svefn og heilsa. En það er mun fleira sem hefur áhrif á jafnvægi í líkamanum eins og t.d. kæling líkamans, hugleiðsla, rétt öndun, föstur, iðkun þakklætis, góð morgunrútína, rétt bætiefni og fjölmargt fleira. Um þetta allt fjallar bókin skipulega, kafla fyrir kafla, og í lok hvers kafla er mælt með bókum til frekari lestrar fyrir þá sem vilja fara meira á dýptina.

Á eigin skinni er vel undirbyggð bók, byggð á áratugs reynslusögu Sölva. Bókin hefst á einlægri frásögn hans af heilsubresti og skrykkjóttri leið til heilsu. Meginefni bókarinnar er umfjöllun um það sem skiptir máli fyrir heilsuna, reynslusögur Sölva og fræðilegar tilvísanir. Meginstefið er að það hentar ekki öllum það sama, við þurfum mögulega að prófa okkur áfram og þess vegna er lýsing Sölva á því sem við getum nýtt okkur á leið til betri heilsu fjölbreytt. Eins og Sölvi segir réttilega í blálok bókarinnar um heilsuferðlagið: „Aðgerðir búa til visku og besti tíminn til að byrja er nákvæmlega núna.".


Fréttir

21.07.2023
18.07.2023

Hafa samband