Fara í efni

Atvinnulífstenglar VIRK

Til baka

Atvinnulífstenglar VIRK

Upplýsingar um einstaklinga í þjónustu hjá atvinnulífstenglum 2020

 

VIRK leggur áherslu á að skapa fjölbreytt tækifæri fyrir einstaklinga í þjónustu og styðja þá til endurkomu inn á vinnumarkaðinn. Á hverju ári ljúka fjölmargir einstaklinga þjónustu hjá VIRK og eru virkir á vinnumarkaði; fara í vinnu, nám eða virka atvinnuleit.

Árið 2020 voru 79% af þeim virkir á vinnumarkaði við lok þjónustu. Umtalsverður hluti þeirra fara aftur til sinna fyrri starfa eða í ný störf með aðstoð ráðgjafa VIRK í starfsendurhæfingu.

Þó er ávallt ákveðinn hluti einstaklinga sem er enn með skerta starfsgetu við lok þjónustu hjá VIRK. Þessi hópur þarf oft aukna aðstoð við að komast inn á vinnumarkaðinn á farsælan hátt og því stendur honum til boða að þiggja þjónustu frá sérstökum atvinnulífstenglum sem starfa hjá VIRK.

Atvinnulífstenglar aðstoða meðal annars við gerð ferilskrár og kynningarbréfs, undirbúning fyrir atvinnuviðtöl og aðstoð við atvinnuleitina sjálfa. Meginmarkmiðið er að undirbúa þessa einstaklinga sem best fyrir atvinnuleit og fylgja þeim síðan eftir, jafnvel eftir að í starf er komið eða eins og þörf er á, en ferlið er sniðið eftir þörfum hvers og eins.

188 störf og 20 einstaklingar í nám

Árið 2020 bárust 430 tilvísanir til atvinnulífstengla frá ráðgjöfum VIRK fyrir þessa sérstöku þjónustu og voru 135 þeirra enn í virkri þjónustu hjá atvinnulífstengli við lok ársins. Á árinu fundust 188 störf og 20 einstaklingar fóru í nám.

Vinnuprófanir eru oft notaðar til að fá betri mynd af vinnugetu einstaklinga og í mörgum tilfellum geta þær endað í áframhaldandi starfi hjá fyrirtækinu. Árið 2020 voru 38 vinnuprófanir settar af stað og af þeim sem þátt tóku fóru 11 einstaklingar í störf í framhaldi af vinnuprófun. Flestir, eða 9, hjá sama fyrirtæki og þeir voru í vinnuprófuninni hjá en 2 fóru í starf hjá öðru fyrirtæki. Auk þessa fóru 3 einstaklingar í nám við lok vinnuprófunar.

Samstarf við fyrirtæki grundvöllurinn

Grundvöllur farsællar atvinnutengingar er gott samstarf við fyrirtæki og gegna atvinnulífstenglar VIRK lykilhlutverki hér. Þeir tengja einstaklinga við fyrirtæki eða stofnanir út frá óskum beggja og aðstoða einstaklinginn, en ekki síður vinnustaðinn, við aðlögun og endurkomu til vinnu. Samstarf við fyrirtæki og stofnanir hefur gengið vel og viðtökur verið góðar en í gegnum allt þetta samstarf hafa hundruð einstaklinga fengið vinnu.

Yfir 1.300 fyrirtæki eru skráð inni í upplýsingakerfi VIRK í dag og er stór hluti þeirra með skráða tengiliði en það auðveldar öll samskipti við fyrirtækin þegar leitað er að störfum hjá þeim. Af þessum fyrirtækjum eru yfir 300 fyrirtæki búin að undirrita sérstakan samstarfssamning við VIRK.


Fréttir

21.07.2023
18.07.2023

Hafa samband