Ársrit VIRK komið út
		Til baka
				
		
		
			
		
	
		
	
	
	
			
				27.04.2022			
			
				
		
		Ársrit VIRK komið út
Ársrit VIRK 2022 er komið út. Í ársritinu er að finna greinargóðar upplýsingar um starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs og árangur, fjölbreyttar greinar um starfsendurhæfingu og tengd viðfangsefni, viðtöl við ráðgjafa og atvinnulífstengla VIRK, viðtöl við þjónustuþega sem lokið hafa starfsendurhæfingu, viðtal við stjórnenda úr atvinnulífu og viðtöl við þjónustuaðila VIRK.
Ársritinu verður dreift um allt land og nálgast má prentútgáfu þess á skrifstofu VIRK í Borgartúni 18 eða á starfsstöðvum ráðgjafa VIRK.
Finna má ársritið rafrænt á Issuu og á vef VIRK með fyrri ársritum.
