Fara í efni

20,5 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK

Til baka

20,5 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK

20,5 milljarða ávinningur var af starfsemi VIRK árið 2019 og ávinningur á hvern útskrifaðan einstakling nam 14,4 milljónum króna. Hvoru tveggja jókst milli ára. Þetta var meðal þess sem kom fram í erindi Vigdísar Jónsdóttur framkvæmdastjóra á ársfundi VIRK þann 28. apríl.

Vigdís fór yfir niðurstöður skýrslu sem Talnakönnun vann fyrir stjórn VIRK sem sýna að 20,5 milljarða króna ávinningur var af starfsemi VIRK árið 2019 reiknað á föstu verðlagi en rekstrarkostnaður VIRK nam 3,4 milljörðum sama ár.

Í skýrslunni var einnig reiknaður meðalsparnaður, ávinningur samfélagsins af virkni einstaklinganna, á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK og nam hann 14,4 milljónum króna á árinu 2019, einnig reiknað á föstu verðlagi.

Bæði heildarávinningurinn og ávinningur samfélagsins af virkni útskrifaðra einstaklinga eykst á milli ára eins sjá má í myndunum hér að ofan og neðan.

Þetta er sjöunda árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og ávinning af starfsemi sinni. Sem fyrr var unnið útfrá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK um þá einstaklinga sem útskrifuðust úr þjónustu VIRK árin 2013-2019 auk þess að unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun. Fundinn var mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Sýnt er fram á í skýrslunni að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu.

Sjá nánar:

Fyrri skýrslur Talnakönnunar.

Árangur VIRK.

VIRK í tölum

Ársrit VIRK 2020


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband