Fara í efni

Atvinnurekendur skilningsríkir

Til baka

Atvinnurekendur skilningsríkir

Hlynur Jónasson atvinnuráðgjafi

Atvinna er mikilvæg fyrir allt fólk og ekki síður fyrir þá sem veikjast af geðsjúkdómum. Hlynur Jónasson atvinnuráðgjafi hjá IPS-verkefninu í Laugarási hefur aðstoðað skjólstæðinga þar við atvinnuleit. „Vinnan við að útvega störf hefur gengið vonum framar, eiginlega mjög vel,“ segir Hlynur.

Hvað þurfa skjólstæðingar Laugaráss að vera vel á veg komnir til þess að þú hefjir með þeim atvinnuleit?
„Sú hlið verkefnisins snýst um að viðkomandi hafi verið í undirbúningi með sínum fagaðilum hjá Laugarási, svo sem læknum og félagsráðgjöfum og fengið frá þeim „grænt ljós“ til að fara að vinna. Nú eða þá að fara í nám. Viðleitnin hjá IPS verkefninu gengur út að koma fólki sem fyrst út í samfélagið aftur. Sú snemmíhlutun sem fram fer í Laugarási hefur það að meginmarkmiði að tengja einstaklinga með geðrof sem fyrst aftur við samfélagið.“

Hvernig taka atvinnurekendur þessari starfsemi?
„Þeir gera það mjög margir með miklum sóma og hafa tekið vel á móti þessu verkefni. Það hafa skapast mörg störf á þessu eina og hálfa ári sem ég hef komið nálægt þessu. Þeir einstaklingar sem hér eru hafa allir, hver á sinn hátt, mikla hæfileika og njóta sín því í hinum ýmsu störfum. Atvinnurekendur eru tilbúnir til að horfa til þessa og gefa þeim tækifæri.“

Skjólstæðingar vilja vinna

Eru skjólstæðingarnir tilbúnir að ganga í flest störf?
„Já það eru þeir. Aðallega þarf að finna góð fyrirtæki sem hafa störf á boðstólum sem henta. Hvað starfsúrval snertir get ég nefnt fyrirtæki í hótelgeiranum og hjá bílaleigum, afgreiðslustörf og störf sem snerta ferðaiðnað. Sem og hefur fólk héðan fengið störf í menningargeiranum, svo sem í leikhúsum og víðar – svo eitthvað sé nefnt.“

Ert þú þá einskonar milligöngumaður?
„Já, ég er það. Ég fylgi þessari hugmyndafræði IPS eftir og samkvæmt henni útvega ég, í samráði við viðkomandi einstakling, starf og fylgi svo hverjum og einum eftir.“

Hafa komið upp erfiðleikar ef fólk veikist aftur?
„Það hefur mjög lítið borið á því. Almennt séð hefur þetta gengið vel. Þar sem slík staða hefur komið upp hefur verið almennur og góður skilningur á aðstæðunum á vinnustaðnum. Sá sem veikist á þá afturkvæmt í sitt starf, eins og gerist almennt eftir veikindi.“

Hvað heldur þú að mörg störf hafi fengist fyrir þína milligöngu?
„Ætli þau séu ekki orðin um átján hjá hinum ýmsu fyrirtækjum.“

Hringja menn frá fyrirtækjum og bjóða störf?
„Nei því miður er það ekki svo gott hvað varðar IPS-verkefnið. En þó hef ég fengið símtöl þessu varðandi gegnum almenna starfsendurhæfingu. Þegar svo háttar til hef ég gjarnan áður kynnt starfsemi VIRK fyrir viðkomandi.“

Eru skjólstæðingarnir spenntir að fá vinnu?
„Já, undantekningarlítið eru þeir það. Það myndast líka ákveðinn vinnuandi í hópnum hér í Laugarási og hann er hvetjandi. Fólkið fer að tala um vinnuna sína og segja frá og það eykur áhuga.“

Eru einstaklingarnir þá áfram að heimsækja Laugarás eftir að þeir fara að vinna?
„Já, en í minna mæli. Ég vil leggja áherslu á að atvinnurekendur sem ég hef haft samskipti við í sambandi við IPS-verkefnið hafa sýnt því mikinn skilning og áhuga og verið tilbúnir til að horfa á styrkleika einstaklingsins en ekki takmarkanir. Það skiptir öllu máli og er grunnurinn að þessu starfi. Sem og góð tengsl einstaklings við sitt vinnuumhverfi.“

Viðtal: Guðrún Guðlaugsdóttir
Viðtalið birtist í ársriti VIRK 2015.

Lestu fleiri reynslusögur stjórnenda hér.


Hafa samband