Fara í efni

Atvinnulífstenglar á ferð og flugi

Til baka
Þóra og Sigurbjörg í Jóhann Rönning
Þóra og Sigurbjörg í Jóhann Rönning

Atvinnulífstenglar á ferð og flugi

Árið 2018 fer af stað með miklum krafti hjá VIRK og deild atvinnulífstengla – Þróun atvinnutengingar – er þar engin undantekning. Atvinnulífstenglum fjölgar jafnt og þétt hjá VIRK, eru nú sex talsins en fjölgar í átta frá og með 1. mars 2018.

Atvinnulífstenglar finna fyrir miklum velvilja fyrirtækja þegar kemur að samvinnu sem skiptir öllu máli í þessari vinnu en um 100 fyrirtæki eru nú í samstarfi við VIRK um að auðvelda endurkomu einstaklinga aftur inn á vinnumarkaðinn eftir langtíma veikindi eða slys.

Um miðjan febrúar höfðu atvinnulífstenglar VIRK komið að ráðningu í 20 störf og nokkur störf eru í ferli. Einstaklingar í þjónustu VIRK hafa verið ráðnir í fjölbreytt störf í janúar og febrúar; kennari, útkeyrsla, móttaka, bókhald, afgreiðsla, smurbrauðsdama, næturvarsla á hóteli, lögfræðistarf, bókasafnsstarf, sölumaður byggingarvörur, þjónn, afgreiðsla snyrtivörur og starf í mötuneyti svo einhver séu nefnd.

Atvinnulífstenglateymið er í samstarfi við fjölda fyrirtækja og vinnur sameiginlega að því að finna rétta staðinn fyrir þá sem nota þjónustuna. Fyrirtækjunum fjölgar jafnt og þétt. sem taka þátt í VIRK Atvinnutenging og skrifa undir samstarfsyfirlýsingu. Atvinnulífstenglar finna vel fyrir því að fleiri þekkja þjónustuna og vilja gjarnan leggja sitt af mörkum til að aðstoða einstaklinga við endurkomu á vinnumarkað. 

Atvinnulífstenglar VIRK vinna saman að því að þróa þjónustuna svo hún verði markvissari á sama tíma og ferlar verðir einfaldir. Á stefnumótunardegi deildarinnar var unnin metnaðarfull áætlun með það að markmiði að skilgreina alla ferla betur og stefna að því að sú vinna skili sér beint til þeirra sem nýta þjónustuna.

Nánar um VIRK Atvinnutenging.


Fréttir

22.04.2024
03.04.2024

Hafa samband