Fara í efni

Erum ánægð með árangurinn

Til baka

Erum ánægð með árangurinn

Vilhjálmur Kári Haraldsson mannauðsstjóri

Virkur vinnustaður hefur verið samstarfsverkefni leikskóla Garðabæjar og VIRK. Vilhjálmur Kári Haraldsson er mannauðsstjóri hjá Garðabæ. Hann er sáttur við árangur þróunarverkefnisins, sem nú hefur verið innleitt í mannauðsstjórnun bæjarins.

„Allir leikskólar Garðabæjar tóku þátt í samstarfsverkefninu Virkur vinnustaður, sem fólst í samstarfi VIRK og atvinnurekenda. VIRK óskaði eftir þátttakendum í þetta þriggja ára verkefni. Það sem heillaði okkur var helst að það var áhersla á jákvæða og heilsusamlega nálgun. Þetta er gríðarlega viðkvæmt viðfangsefni,“ segir Vilhjálmur Kári.

„Veikindi fólks eru eðlilega viðkvæmt mál. Allir starfsmenn á leikskólum Garðabæjar voru með í þessu verkefni. Leikskólarnir eru átta talsins og starfsmenn þeirra eru hundrað níutíu og níu í hundrað fimmtíu og níu stöðugildum.“

Hvernig gekk þetta samstarf?
„Samstarfið gekk mjög vel og við fengum góða leiðsögn frá VIRK og aðhald líka. Þegar verið er að byrja í svona verkefni sér fólk ekki árangur strax og setur það þá aftar í forgangsröðina. En það var ýtt við okkur, við rukkuð um skýrslur og niðurstöður og fyrirspurnir komu um hvernig gengi.

Það hjálpaði okkur mjög mikið að fá ráðgjöf frá VIRK, svona verkefni eru langhlaup. Eftir svona tvö ár fórum við að sjá árangur. Þá fóru allir þátttakendur að verða stoltir af starfinu í kringum þetta og fannst það skipta máli.“


Stofnanir innleiða viðverustjórnun

Hver er niðurstaðan?
„Niðurstaðan hjá okkur er sú að við erum búin að setja þetta inn í mannauðsstefnu Garðabæjar og allar stofnanir bæjarins munu innleiða þessa viðverustjórnun, en eru mislangt komnar. Sumir innleiddu þetta fyrir þremur árum en aðrar stofnanir eru að byrja vegferðina. Þetta er því orðið hluti af markvissri mannauðsstjórnun hjá Garðabæ.“

Breytir þetta miklu?
„Já, þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Ef hægt er að draga úr fjarvistum þá sparar það mikla fjármuni. Óvissa með fjarvistir er alltaf viðvarandi en ef allir eru að huga að þessum þætti þá er hægt að draga úr honum. Auðvitað eru veikindi fólks breyta sem erfitt er að hafa áhrif á, en stærsta áskorunin er langtímaveikindi. Þar getur þetta skipt miklu máli.“

Hafa margir glímt við langtímaveikindi hjá leikskólum Garðabæjar?
„Það er ekki meira um slíkt í leikskólum en á öðrum vinnustöðum. En vissulega eru margir að glíma við langtímaveikindi og hefur verið brugðist við því. Í þessari við-verustjórnun eru leiðbeiningar um hvernig bregðast skal við langtímaveikindum og skammtímaveikindum. Það er gert á nokkuð mismunandi hátt.“


Verkfærið viðverusamtal

Hver er munurinn?
„Verkfærið sem við notum í skammtímaveikindum er svokallað viðverusamtal. Í því felst að við erum að kanna hvort það er eitthvað í starfsemi vinnustaðarins sem hefur áhrif á veikindin. Þegar um langtímaveikindi er að ræða er endurkoma í vinnu mikilvæg. Hafi einhver verið í burtu t.d. í sex mánuði getur hann komið inn í hlutastarf tímabundið, meðan hann er að ná fullri starfsorku. Við erum með í viðverustefnunni að ef fólk er fjarverandi samfellt í fimm daga þá kemur til viðverusamtals.“

Ertu ánægður með árangur þessa þróunarverkefnis VIRK?
„Heilt yfir erum við ánægð með verkefnið. En auðvitað er árangurinn misjafn eftir leikskólunum. Það er með þetta eins og annað, ef lagður hefur verið metnaður og mikil vinna í verkefnið þá kemur meira út úr því.“

Viðtal: Guðrún Guðlaugsdóttir
Viðtalið birtist í ársriti VIRK 2015.

Lestu fleiri reynslusögur stjórnenda hér.


Hafa samband