Fara í efni

Aukin forvarnaþjónusta hjá VIRK

Til baka

Aukin forvarnaþjónusta hjá VIRK

Unnið gegn brotthvarfi af vinnumarkaði sökum heilsubrests

Guðrún Rakel Eiríksdóttir sviðsstjóri forvarna

 

Í tengslum við stefnumótunarvinnu sem fór af stað hjá VIRK síðastliðið haust var ákveðið og kynnt í desember 2024 að aukin áhersla yrði lögð á forvarnaþjónustu hjá VIRK, m.a. með nýju forvarnasviði þar sem lögð yrði aukin áhersla á aukna þjónustu við einstaklinga og atvinnulíf.

Lögð er rík áhersla á tengsl farsællar atvinnuþátttöku og heilsufars í stefnu forvarna hjá VIRK. Þá er litið til mikilvægis heilbrigðs vinnuumhverfis sem tekur mið af mismunandi þörfum fólks á vinnumarkaði. Styðjandi vinnuumhverfi getur haft mikil áhrif á líðan starfsfólks og afköst í vinnunni. Með því að vinna markvisst að því að móta styðjandi og heilsusamlegt vinnuumhverfi er í raun verið að stuðla að aukinni virkni og starfsánægju einstaklinga á vinnumarkaði. Heilsubrestur þarf svo sannarlega ekki að útiloka atvinnuþátttöku og í einhverjum tilvikum getur starfið og það að hafa hlutverk verið gríðarlega mikilvægt þegar kemur að líðan fólks.

Styðjandi vinnuumhverfi getur haft mikil áhrif á líðan starfsfólks og afköst í vinnunni. 

Rannsóknir sýna að árangursríkar forvarnir geta dregið úr líkum á ýmiss konar heilsufarsvanda og aukið starfsánægju. VIRK hefur lengi unnið að því að styðja einstaklinga sem eiga á hættu að detta út af vinnumarkaði vegna heilsubrests en á síðustu árum hefur verið lögð aukin áhersla á forvarnir. Meginmarkmið forvarna hjá VIRK er í raun að draga úr líkum á að einstaklingar þurfi yfir höfuð á starfsendurhæfingu að halda. Í því samhengi er mikilvægt að nýta þá þekkingu og reynslu sem hefur skapast innan starfsendurhæfingar varðandi hindranir, verndandi þætti og aðstæður í vinnu. Þannig veitir sviðið einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum þjónustu á sviði forvarna sem hafa það að markmiði að auka vinnugetu einstaklinga og þátttöku þeirra á vinnumarkaði. Lögð verður sérstök áhersla á að efla bæði starfsmenn og stjórnendur til sjálfshjálpar.

Tilraunaverkefni í forvarnaþjónustu

Í byrjun ársins var farið af stað með tilraunaverkefni sem snýr að nýrri forvarnaþjónustu hjá VIRK fyrir einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði. Tilgangurinn er að veita viðeigandi stuðning snemma og koma þannig í veg fyrir að fólk hverfi af vinnumarkaði vegna heilsubrests. Þjónustan er því veitt samhliða atvinnuþátttöku. Um er að ræða einstaklingsmiðað ferli en úrræðin eru veitt í forvarnaskyni og er mikil áhersla lögð á að skoða samspil vinnuumhverfisins og heilsufars. Þjónustan er fyrir einstaklinga sem eru farnir að eiga erfitt með að sinna vinnunni og farið að bera á andlegum og/ eða líkamlegum álagseinkennum. Mikilvægt er að vinnuumhverfið styðji starfsmanninn í þessu ferli enda er gríðarlegur ávinningur fyrir vinnustaðinn ef hægt er að grípa viðkomandi starfsmann sem er farinn að baksa og koma þannig í veg fyrir veikindafjarveru.

Mikilvægt er að vinnuumhverfið styðji starfsmanninn í þessu ferli enda er gríðarlegur ávinningur fyrir vinnustaðinn ef hægt er að grípa viðkomandi starfsmann sem er farinn að baksa og koma þannig í veg fyrir veikindafjarveru.

Þjónustan er ekki sú sama og veitt er í þverfaglegri starfsendurhæfingu. Ef heilsufar einstaklings er með þeim hætti að þörf er á starfsendurhæfingu eða þjónustu í heilbrigðiskerfinu þá á forvarnaþjónusta VIRK ekki við. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að mikilvægt er að tryggja að fólk fái viðeigandi aðstoð við sínum vanda. Enn er verið er að móta verkferla varðandi tilvísanir í forvarnaþjónustuna og munu þær upplýsingar verða kynntar síðar.

Upplýsingamiðlun, fræðsla og samstarf

Forvarnaþjónusta VIRK verður einnig í formi upplýsingamiðlunar, fræðslu og samstarfs sem miðar að því að auka starfsgetu og vinnumarkaðsþátttöku einstaklinga með heilsubrest. Mikill vilji er til þess að miðla þeirri fagþekkingu sem er til staðar hjá VIRK út í atvinnulífið. Eins er mikilvægt að fylgja rannsóknum og bestu þekkingu hverju sinni og líta til alþjóðlegra leiðbeininga þegar kemur að árangursríkum forvörnum. Unnið verður markvisst að því á næstunni að fyrirtæki á íslenskum vinnumarkaði verði upplýst um forvarnaþjónustu VIRK og geti nýtt sér hana á markvissan hátt til að bæta vinnuumhverfi og líðan starfsmanna sinna.

Ráðist hefur verið í endurbætur á forvarnavefnum www.velvirk.is með það að leiðarljósi að skerpa á margvíslegri fræðslu sem miðar að því að bæta líðan í vinnu. Forvarnasíðan mun koma til með að nýtast einstaklingum og vinnustöðum hvort sem um er að ræða einstaklingsbundna fræðslu og ráðleggingar varðandi líðan í vinnu eða ráð og áætlanir fyrir stjórnendur sem vilja bæta eða viðhalda góðu vinnuumhverfi og styðja við sitt starfsfólk.

Í febrúar á þessu ári var boðið upp á morgunverðarfund sem fjallaði um efnahagsleg áhrif vinnutengdrar streitu og algengi kulnunareinkenna á Íslandi1. Þar fjallaði Jósef Sigurðsson, dósent við Hagfræðideild Stokkhólmsháskóla, um efnahagsleg áhrif vinnutengdrar streitu og kostnað fyrir einstaklinga og samfélag. Erindið byggði á viðamikilli rannsókn þar sem notast er við læknisfræðileg gögn um sjúkdómsgreiningar og vinnumarkaðsgögn frá Svíþjóð. Í rannsóknum Jósefs og rannsóknarfélaga er meðal annars komið inn á mikilvægi forvarna þegar kemur að því að draga úr líkum á óvinnufærni vegna vinnutengdrar streitu2. Langvarandi streita í starfi eykur verulega líkur á veikindafjarveru vegna kulnunar og getur haft mikil áhrif á heilsufar. Það er því til mikils að vinna fyrir allt samfélagið ef hægt er að sporna gegn auknum veikindafjarvistum, minnkandi afköstum í starfi og draga þannig úr kostnaði innan heilbrigðiskerfisins.

Með því að leggja áherslu á góða stjórnunarhætti, heilsueflingu og snemmtæka íhlutun er hægt að draga úr líkum á óvinnufærni og veikindafjarvistum. 

Forvarnir geta gegnt lykilhlutverki í því að sporna gegn brotthvarfi af vinnumarkaði vegna heilsubrests. Með því að leggja áherslu á góða stjórnunarhætti, heilsueflingu og snemmtæka íhlutun er hægt að draga úr líkum á óvinnufærni og veikindafjarvistum. Mikilvægt er að huga að því að þegar kemur að líðan í vinnu þá skiptir öll heildin máli; skipulagsheildin (e.organization), starfsfólkið, stjórnendur og einstaklingar. Öll getum við átt mikilvægan þátt í að auka vellíðan okkar og annarra á vinnustaðnum. Þá má því segja að vellíðan í vinnunni sé „verkefni okkar allra“.

Heimildir

1. Upptaka af fundinum: https://www.virk. is/is/um-virk/upplysingar/frettir/kulnunog-vinnumarkadurinn-morgunfundur-13- februar
2. Nekoei, A., Sigurdsson, J., & Wehr, D. (2024). The economic burden of burnout. [http://dx.doi.org/10.2139/ssrn.4827359]).

Greinin birtist í ársriti VIRK 2025.


Fréttir

06.05.2025
03.06.2025

Hafa samband