Fara í efni

Auglýst eftir efni í ársrit 2018

Til baka

Auglýst eftir efni í ársrit 2018

Ársrit VIRK verður venju samkvæmt gefið út í apríl á næsta ári. Skýrsla framkvæmdastjóra og annar fróðleikur, frásagnir af starfsemi VIRK og viðtöl verða meðal efnis í ársritinu en auk þess verður sem fyrr boðið upp á fræðilega umfjöllun um starfsendurhæfingu í ársritinu.

Þeir sem hafa áhuga og þekkingu á málaflokknum og hafa hugmyndir að greinum og/eða umfjöllunarefnum eru beðnir um að hafa samband við ritstjóra, senda t.d. tölvupóst á eysteinn@virk.is eða joninaw@virk.is.

Ársritið kemur út eins og fyrr segir í apríl 2018 á ársfundi VIRK og verður dreift til einstaklinga, fagfólks, stéttarfélaga, atvinnurekenda, heilbrigðistofnana og bókasafna um allt land, auk þess sem ársritið verður aðgengilegt á heimasíðu VIRK.

Sjá má fyrri ársrit VIRK hér.


Fréttir

22.04.2024
03.04.2024

Hafa samband