Bjargráð - faglega aðstoð fyrir fjölskyldur fanga
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur veitt Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu styrk til þess að veita aðstandendum fanga faglega aðstoð. Verkefnið er tilraunaverkefni til eins árs og felur í sér að kortleggja þörfina og bjóða fjölskyldum fanga meðferð, ráðgjöf og stuðning.
Verkefnið er komið af stað og eru það Eiríkur Steinarsson og Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, fjölskyldufræðingar hjá Óróa meðferð sem sinna verkefninu næstu 10 mánuðina.
Aðstandendur fanga eru í viðkvæmri stöðu og mikilvægt er að veita stuðning og ráðgjöf bæði í kjölfar þess áfalls að nákominn aðila er handtekinn, einnig meðan beðið er eftir dómi og loks ef viðkomandi hlýtur dóm, að takast á við fjarveru viðkomandi. Þegar talað er um aðstandendur er átt við m.a. foreldra, maka, börn og systkini. Verkefnið er unnið í samstarfi við fagfólk um allt land. Munu fjölskylduráðgjafar Bjargráðs setja sig í samband við viðeigandi stofnanir og einstaklinga, þar má nefna: lögreglu, fangelsismálayfirvöld, félagsþjónustu og barnavernd, sálfræðinga og presta.
Hægt er að panta tíma í gegnum tölvupóst eða hringja:
Eiríkur Steinarsson, netfang: eirikur.steinarsson@kirkjan.is sími: 867-2450
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, netfang: jenny.magnusdottir@kirkjan.is sími: 771-4966