VIRK framúrskarandi fyrirtæki
		Til baka
				
		
		
			
		
	
		
	
	
	
			
				27.01.2017			
			
				
		
		VIRK framúrskarandi fyrirtæki
Creditinfo staðfesti í vikunni að VIRK Starfsendurhæfingarsjóður er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2016. Eingöngu komu til greina þau fyrirtæki sem staðist hafa styrkleikamat Creditinfo og uppfylla ströng skilyrði sem lögð eru til grundvallar við greiningu á framúrskarandi fyrirtækjum 2016.
VIRK er á meðal 1,7% íslenskra fyrirtækja sem standast þessar kröfur en af tæplega 35.000 skráðum fyrirtækjum á Íslandi uppfylla 624 skilyrði Creditinfo um styrk og stöðugleika.
Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo:
- Hefur skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár
 - Er í lánshæfisflokki 1-3
 - Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð
 - Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð
 - Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð
 - Eignir hafa numið 80 milljónum eða meira þrjú ár í röð
 - Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá
 - Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo