Fara í efni

VIRK fyrirmyndarfyrirtæki

Til baka

VIRK fyrirmyndarfyrirtæki

VIRK er eitt 15 fyrirtækja sem teljast til fyrirmyndar í flokki meðalstórra fyrirtækja árið 2018.

Fyrirtæki ársins 2018 voru valin nýverið samkvæmt niðurstöðum könnunar sem VR stendur fyrir meðal þúsunda starfsmanna á almennum vinnumarkaði ár hvert.

Markmið könnunarinnar er að leita upplýsinga um viðhorf starfsmanna til vinnustaðar síns en auk þess þá er könnunin vettvangur starfsmannanna til að segja stjórnendum hvað er vel gert og hvað mætti betur fara. Fyrirtæki ársins eru fimmtán talsins, fimm í hverjum stærðarflokki.

Fyrirtækin sem eru í fimmtán efstu sætunum í hverjum flokki í könnuninni teljast til fyrirmyndar og fá viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki 2018. VIRK er eitt þessara fyrirmyndarfyrirtækja, er í 13. sæti í flokki meðalstórra fyrirtækja og stekkur þangað úr 30. sætinu í könnuninni 2017.

Listinn yfir fyrirmyndarfyrirtæki VR 2018.


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband