Fara í efni

Myndband um starfsendurhæfingarferilinn

Til baka

Myndband um starfsendurhæfingarferilinn

Sérfræðingar VIRK hafa unnið stutt myndband með auglýsingastofunni PIPAR með það að markmiði að skýra starfsendurhæfingarferilinn, hvernig hann snýr að einstaklingnum sem nýtir sér þjónustuna. 

Mjög fjölbreyttur hópur leitar til VIRK og leitast er við að veita hverjum þeirra starfsendurhæfingarþjónustu við hæfi. Í myndbandinu er tveimur ímynduðum notendum þjónustunnar, þeim Sigmari og Ástríði, fylgt eftir frá því að þau hverfa af vinnumarkaði og þar til þau snúa aftur til vinnu. Þetta eru ekki dæmi um flóknustu tilfellin sem VIRK hefur tekist á við, en ekki heldur þau auðveldustu.

Myndböndin má finna á Youtuberás VIRK – á íslensku hér og á ensku hér og með öðru kynningarefni VIRK hér.


Fréttir

22.04.2024
03.04.2024

Hafa samband