Fara í efni

Ávinningur af virkni einstaklinga eykst

Til baka
Meðalsparnaður á einstakling
Meðalsparnaður á einstakling

Ávinningur af virkni einstaklinga eykst

Reiknaður meðalsparnaður á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði nam 12,2 milljónum króna á árinu 2016 samkvæmt skýrslu sem Vigfús Ásgeirsson tryggingastærðfræðingur hjá Talnakönnun hf vann fyrir stjórn VIRK. Meðalsparnaður á einstakling eykst milli ára, var rúmlega 10 milljónir árin 2013-2015 eins og sést á myndinni hér til hliðar.

Í niðurstöðum skýrslunnar kemur einnig fram að 13,6 milljarða króna ávinningur var af starfsemi VIRK árið 2016. Niðurstöður fyrri athugana Talnakönnunar sýndu að ávinningur af starfi VIRK var 13,8 milljarðar 2015, 11,2 milljarðar króna 2014 og 9,7 milljarðar á árinu 2013. Í þessu samhengi má benda á að rekstrarkostnaður VIRK árið 2016 nam 2,4 milljörðum, 2,2 milljörðum 2015, 2 milljörðum 2014 og 1,3 milljörðum á árinu 2013.

Þetta er fjórða árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og hagnað af starfsemi sinni. Sem fyrr var unnið útfrá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK um þá einstaklinga sem útskrifuðust úr þjónustu VIRK árin 2013, 2014, 2015 og 2016 auk þess að unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun. Fundinn var mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Sýnt er fram á í skýrslunni að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið þátt í samfélaginu.

Skýrslu Talnakönnunar um ávinninginn af starfsemi VIRK 2016 má sjá hér og fyrri skýrslur má sjá hér.


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband