Fara í efni

Breyttir tímar - nýjar áskoranir

Til baka

Breyttir tímar - nýjar áskoranir

Ársfundur VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs var haldinn mánudaginn 24. apríl 2017 kl. 11:00 – 15:00 á Grand Hótel í Reykjavík.

Auk hefðbundinna ársfundarstarfa var boðið upp á faglega dagskrá undir yfirskriftinni Breyttir tímar – nýjar áskoranir sem hófst með ávarpi Þorsteins Víglundssonar félags- og jafnréttismálaráðherra. Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK fór yfir leiðir til þess að auka vinnugetu og þátttöku á vinnumarkaði og Jónína Waagfjörð sviðsstjóri þróunar atvinnutengingar hjá VIRK reifaði hvernig vinnan sjálf getur verið árangursríkt úrræði í starfsendurhæfingu. Þá ræddi Ingibjörg Jónsdóttir, forstöðumaður Institutet för Stressmedicin og prófessor við Háskólann í Gautaborg, streituna og starfið auk þess sem einstaklingur sem lokið hefur starfsendurhæfingu og stjórnandi úr atvinnulífinu deildu reynslu sinni með ársfundargestum.

Ársfundurinn var öllum opinn en meðlimir fulltrúaráðs VIRK hafa einir atkvæðisrétt.

Dagskrá ársfundar VIRK 2017

11:00 - 12:00: Hefðbundin ársfundarstörf

1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur liðins árs kynntur og til samþykktar
3. Tilkynning um skipan stjórnar
4. Kosning endurskoðenda
5. Önnur mál

12:00 - 13:00: Hádegisverður ársfundargesta

13:00 - 15:00: Breyttir tímar - nýjar áskoranir

Ávarp
Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra

Að auka vinnugetu og þátttöku á vinnumarkaði 
Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK - sjá glærur hér.

Streitan og starfið – Nýjustu rannsóknir
Ingibjörg Jónsdóttir forstöðumaður Institutet för Stressmedicin og prófessor við Háskólann í Gautaborg

Reynslusaga einstaklings sem lokið hefur starfsendurhæfingu

Vinnan er úrræði
Jónína Waagfjörð sviðsstjóri þróunar atvinnutengingar hjá VIRK - sjá glærur hér.

Reynslusaga stjórnanda úr atvinnulífinu 

 


Fréttir

22.04.2024
03.04.2024

Hafa samband