Fara í efni

Auður og Vigdís tilnefndar til Stjórnvísiverðlauna

Til baka
Verðlaunafhendingin 2015
Verðlaunafhendingin 2015

Auður og Vigdís tilnefndar til Stjórnvísiverðlauna

Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK, og Auður Þórhallsdóttir, sviðsstjóri mannauðsmála hjá VIRK, eru tilnefndar til stjórnendaverðlauna Stjórnvísi 2018. Vigdís hlaut stjórnendaverðlaunin árið 2015.

Verðlaunin, sem nú verða veitt í níunda sinn, eru veitt stjórnendum fyrirtækja sem skara framúr á sínu sviði og er ætlað að „vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda, örva umræðu um faglega stjórnun og hvetja félagsmenn til að auka þekkingu sína, hæfni og færni sem stjórnendur.“

Tilkynnt verður um verðlaunahafa 28. febrúar og mun forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenda þremur sigurvegurum verðlaunin á Grand hótel.

Hér má sjá þá sem eru tilnefndir til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi árið 2018.


Fréttir

29.01.2024
23.01.2024

Hafa samband