Fara í efni

Fjölsóttur ársfundur

Til baka

Fjölsóttur ársfundur

Ársfundur VIRK sem haldinn var haldinn þriðjudaginn 24. apríl í Háteigi á Grand Hótel Reykjavík var bæði fjölsóttur og fróðlegur.

Í fyrri hluta fundarins fór Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK, yfir starfsemina - sjá glærur hér, Hafdís P. Magnúsdóttir sagði frá reynslu sinni og árangri sem hún náði í starfsendurhæfingu sinni, Magnús Smári Snorrason atvinnulífstengill fór yfir VIRKa Atvinnutengingu - sjá glærur hér - og Svava Þorsteinsdóttir, forstöðumaður mannauðssviðs Lyfju, greindi frá samstarfi VIRK og Lyfju í gegnum VIRKa Atvinnuteningu - sjá glærur hér. 

Í seinni hluta fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf á dagskrá samkvæmt skipulagsskrá VIRK. Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður stjórnar VIRK flutti skýrslu stjórnar, ársreikningur VIRK 2017 var lagður fram og samþykktur samhljóða og greint var frá skipan stjórnar VIRK starfsárið 2018-2019.

Ársrit VIRK 2018 var einnig gefið út á ársfundinum. Ársritið samanstendur af greinum og viðtölum tengdum starfsendurhæfingu og í því er að finna greinargóðar upplýsingar um starfsemi VIRK, viðtal við Vigdísi framkvæmdastjóra í tilefni 10 ára afmæli VIRK, viðtöl við ráðgjafa VIRK og viðtöl einstaklinga sem lokið hafa starfsendurhæfingu sem og samstarfsaðila VIRK.

Hægt er að nálgast rafrænt eintak af ársritinu 2018 hér. Ársritið liggur einnig frammi á skrifstofu VIRK í Guðrúnartúni 1 og verður dreift víða um land.


Fréttir

03.04.2024
29.01.2024

Hafa samband