Fara í efni

Aldrei fleiri nýir hjá VIRK

Til baka

Aldrei fleiri nýir hjá VIRK

2.362 einstaklingar voru í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK í lok árs 2017, 17% fleiri en um síðustu áramót, og í lok árs höfðu alls 12.856 leitað til VIRK frá stofnun starfsendurhæfingasjóðsins árið 2008.

1.854 einstaklingar komu nýir inn í þjónustu hjá VIRK á árinu 2017, 8.2% fleiri en árið 2016 og hafa ekki áður svo margir hafið starfsendurhæfingu á einu ári. 1.164 einstaklingar luku starfsendurhæfingarþjónustu árið 2017, svo til næstum jafnmargir og árið á undan. Meðaltímalengd einstaklinga í þjónustu hjá VIRK var 14 mánuðir 2017 og lengdist um 1 mánuð á milli ára.

Árangur og ávinningur af starfsemi VIRK - fjárhagslegur og samfélagslegur - er mjög mikill þar sem hún hefur á undanförnum árum skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði. 7.390 einstaklingar hafa lokið þjónustu, útskrifast, frá VIRK og rúmlega 70% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift, eru með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.

Þennan árangur hafa utanaðkomandi aðilar staðfest en niðurstöður athugunar Talnakönnunar sýna að ávinningurinn af starfsemi VIRK á árinu 2016 hafi numið um 13,6 miljörðum og að reiknaður meðalsparnaður á hvern útskrifaðan einstakling fari vaxandi á milli ára, var 12,2 milljónir en 10 milljónir árin 2013-2015.

Þá sýna þjónustukannanir VIRK að þátttakendur eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu.

Sjá nánar í VIRK í tölum, árangur VIRK og samantekt um starfsemi VIRK.


Fréttir

29.01.2024
23.01.2024

Hafa samband