Fara í efni

17 milljarða ávinningur

Til baka

17 milljarða ávinningur

Niðurstöður skýrslu Talnakönnunar hf, sem Vigfús Ásgeirsson tryggingastærðfræðingur vann fyrir stjórn VIRK og kynnt var nýverið á ársfundi VIRK, sýna að 17,2 milljarða króna ávinningur var af starfsemi VIRK árið 2018 en rekstrarkostnaður VIRK nam 3,1 milljörðum það ár. Í skýrslunni var einnig reiknaður meðalsparnaður, ávinningur samfélagsins af virkni einstaklinganna, á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK og nam hann 12,7 milljónum króna á árinu 2018.

Þetta er sjötta árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og ávinning af starfsemi sinni. Sem fyrr var unnið útfrá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK um þá einstaklinga sem útskrifuðust úr þjónustu VIRK árin 2013-2018 auk þess að unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun. Fundinn var mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Sýnt er fram á í skýrslunni að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu. 

Sjá nánar Árangur VIRK.

Skýrslu Talnakönnunar um ávinninginn af starfsemi VIRK 2018 og fyrri skýrslur má sjá hér.


Fréttir

22.04.2024
03.04.2024

Hafa samband