Virk Starfsendurhæfingarsjóður

SKIPULAGSSKRÁ VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs 1. gr. Heimili og varnarþing VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður, SES,  er sjálfseignarstofnun og sjóður með

Skipulagsskrá


SKIPULAGSSKRÁ
VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs


1. gr.
Heimili og varnarþing
VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður, SES,  er sjálfseignarstofnun og sjóður með sérstaka stjórn. Heimili og varnarþing hennar er að (Sætúni 1, Reykjavík ). VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfstæður lögaðili sem ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og er ekki rekinn í ágóðaskyni.    

2. gr.
Markmið
Markmið VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.

3. gr.
Verkefni og hlutverk
Fjármunum VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs skal ráðstafað í eftirtalin verkefni hans og hlutverk:
•    að skipuleggja þjónustu og veita úrræði fyrir þá starfsmenn sem veikjast til lengri tíma eða slasast þannig að vinnugeta skerðist
•    að koma að málum eins snemma og kostur er til að stuðla að því að hver einstaklingur verði svo virkur á vinnumarkaði sem vinnugeta hans leyfir, m.a. með samstarfi um forvarnir á vinnustöðum
•    að skipuleggja og hafa umsjón með störfum ráðgjafa sem verða aðallega á vegum sjúkrasjóða eða fjölskyldu- og styrktarsjóða stéttarfélaganna og greiða kostnaðinn af störfum þeirra
•    að semja við fagaðila um ráðgjöf við einstaklinga um endurhæfingaráætlun og greiða kostnaðinn af þeirri ráðgjöf
•    að greiða fyrir kostnað við úrræði og endurhæfingu til viðbótar því sem veitt er af hinni almennu heilbrigðisþjónustu
•    að byggja starfsemi sína á samstarfi einstaklinganna sem í hlut eiga, fyrirtækjanna sem þeir vinna hjá, stéttarfélaganna, ráðgjafanna, fagaðila og heilbrigðisþjónustunnar
•    að vinna að gagnaöflun, rannsóknum og þróun endurhæfingar og tryggja að framkvæmd þeirra verði sem árangursríkust
•    að vinna að öðrum þeim verkefnum sem falla að markmiðum og hlutverki sjóðsins.

4. gr.
Stofnaðilar
Stofnendur eru Alþýðusamband Íslands, kt. 420169-6209  og Samtök atvinnulífsins, kt. 680699-2919, BSRB, kt. 440169-0159, Kennarasamband Íslands, kt. 501299-3329, Bandalag háskólamanna, kt. 630387-2569, fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs kt. 550169-2829 og Reykjavíkurborg, kt.530269-7609 og Launanefnd sveitarfélaga, kt. 550269-4739. Fjárhagslegar skuldbindingar VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs umfram stofnframlag eru stofnendum óviðkomandi.

5. gr.
Stjórn
Stjórn VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs er skipuð tólf fulltrúum. Nánar tiltekið fjórum fulltrúum frá ASÍ, einum fulltrúa frá BSRB, einum fulltrúa frá KÍ og BHM sameiginlega, fjórum fulltrúum frá SA, einum fulltrúa frá ríkinu og einum fulltrúa frá Launanefnd sveitarfélaganna og Reykjavíkurborg sameiginlega. Skipa skal og átta fulltrúa til vara, tvo frá ASÍ, einn frá BSRB, einn frá BHM og KÍ sameiginlega, tvo frá SA og einn frá ríki og einn frá sveitarfélögum sameiginlega. Stjórnarmenn eru skipaðir til tveggja ára í senn. Skipun stjórnarmanna tekur gildi og skal tilkynnt á ársfundi. Stjórn skiptir með sér verkum. Innan stjórnar skal skipuð sérstök framkvæmdastjórn sem hefur umboð til að starfa með framkvæmdastjóra um daglegan rekstur sjóðsins, en allar meiri háttar ákvarðanir og stefnumótun er í höndum stjórnar. Framkvæmdastjórn er skipuð sex fulltrúum úr stjórn.  Tveimur frá ASÍ, tveimur frá SA, einum frá fulltrúum opinberra starfsmanna og einum frá opinberum vinnuveitendum.  Formaður og varaformaður sjóðsstjórnar skulu vera í hópi þessara sex fulltrúa í framkvæmdastjórn og aðrir fulltrúar skulu kjörnir á fyrsta stjórnarfundi eftir ársfund ár hvert.

6. gr.
Fulltrúaráð
Sérstakt fulltrúaráð skal skipað fulltrúum stofnaðila sem að sjóðnum standa og fer það með atkvæði á ársfundum og aukaársfundum í umboði stofnaðilanna og í samræmi við ákvæði stofnsamþykkta þessa. Fulltrúar launafólks og atvinnurekenda tilnefna hvor um sig 30 manns til setu í fulltrúaráðinu og skulu samtök launafólks skipa fulltrúa sína sameiginlega í hlutfalli við stofnfé hvers og eins. Við tilnefningar skal leitast við að endurspegla sem best greiðendur í sjóðinn.

7. gr
Hlutverk og starfshættir stjórnar.
Hlutverk stjórnar VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs er að móta og þróa starfsemi sjóðsins í samræmi við markmið hans.  Framkvæmdastjórn ber, í umboði stjórnar, ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum sjóðsins, en allar meiriháttar ákvarðanir skal leggja fyrir stjórn.  Stjórn ræður framkvæmdastjóra. Stjórnin ákveður meginþætti í stefnu og starfstilhögun sjóðsins og setur sér, framkvæmdastjórn og framkvæmdastjóra starfsreglur og reglur um ávöxtun eigna sjóðsins. Stjórnarfundi skal halda svo oft sem nauðsyn krefur en þó ekki sjaldnar en ársfjórðungslega. Formaður undirbýr stjórnarfundi í samráði við framkvæmdastjóra sem boðar til þeirra með hæfilegum fyrirvara og með tryggilegum hætti. Einfaldur meirihluti gildir á stjórnarfundum og veitir prókúruumboð fyrir stofnunina. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda stofnunina.  Stjórnarmaður má ekki taka þátt í meðferð máls ef málefnið varðar hann persónulega.

Stjórn ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum sjóðsins, en allar meiriháttar ákvarðanir framkvæmdastjórnar og framkvæmdastjóra skal leggja fyrir stjórn.

8. gr
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð gagnvart stjórn og framkvæmdastjórn VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs í samræmi við starfslýsingu sem samþykkt skal í stjórninni. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur, ræður annað starfsfólk sjóðsins, vinnur að innheimtu samningsbundinna gjalda og ber ábyrgð á fjárreiðum og reikningsskilum. Framkvæmdastjóri undirbýr fjárhagsáætlun, sem stjórn skal afgreiða fyrir lok nóvember ár hvert. Stjórn skal marka stefnu og ákveða þær reglur sem gilda varðandi samninga VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs við sjálfstæða aðila um rekstur eða þjónustu í þágu starfsendurhæfingar. Leggja skal alla slíka samninga fyrir framkvæmdastjórn til samþykktar. Framkvæmdastjóri skal sitja stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt.

9. gr.
Ársfundur
Stjórnin boðar stofnaðila til ársfundar sem haldinn skal eigi síðar en í lok apríl ár hvert. Á ársfundi gerir stjórnin grein fyrir starfi sjóðsins og leggur fram ársreikninga til samþykktar. Endurskoðaður ársreikningur skal liggja frammi til kynningar minnst viku fyrir ársfund. Á ársfundi skal jafnframt kjósa löggiltan endurskoðanda til að endurskoða reikninga sjóðsins og tilkynna skipan stjórnarmanna.  Einfaldur meirihluti atkvæða gildir. Ársfund skal boða skriflega með tveggja vikna fyrirvara hið skemmsta og skal hann opin öllum.  Tillagna um breytingar á skipulagsskrá skal getið sérstaklega í fundarboði. Tillögur stofnaðila til breytinga á stofnskrá og/eða aðrar tillögur til ársfundar skulu berast formanni stjórnar ekki síðar en 20. mars.

Dagskrá ársfundar skal vera sem hér segir:

1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur liðins árs kynntur og til samþykktar.
3. Breytingar á skipulagsskrá (ef við á).
4. Tilkynning um skipan stjórnar sbr. 5. gr.
5. Kosning endurskoðenda.
6. Önnur mál.

10. gr.
Aukaársfundur
Stjórn getur boðað til aukaársfundar ef nauðsyn krefur. Aukaársfundur skal boðaður með dagskrá með minnst viku fyrirvara.

11. gr.
Reikningsskil og endurskoðun
Reikningsár VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs er frá 1. janúar til 31. desember. Um reikningshald fer samkvæmt lögum nr. 33/1999 um sjálfseignastofnanir sem stunda atvinnurekstur. Reikningar skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda. Endurskoðandi skal leggja endurskoðaðan ársreikning fyrir stjórn fyrir lok febrúarmánaðar. Endurskoðaðan reikning ber að senda til Ríkisendurskoðunar þegar hann hefur hlotið samþykki ársfundar og skal honum fylgja skýrsla um hvernig fé sjóðsins hefur verið ráðstafað á árinu. Samhliða framlagningu ársreiknings í stjórn skal framkvæmdastjóri leggja fram skýrslu sína um starfsemi síðasta árs.

12. gr.
Stofnfé og tekjur
Stofnfé VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs er framlög ofangreindra stofnaðila, sem leggja fram eftirfarandi stofnfé við undirritun stofnskrár.
ASÍ .         500.000,-        SA             500.000,-
BSRB        125.000,-        KÍ               62.500,-
BHM            62.500,-        Fjármálaráðherra    125.000,-
Launanefnd sveitarfélaganna og Reykjavíkurborg          125.000,-

Þar af er óskerðanlegt stofnfé kr. 1.000.000. Stofnfé skal ávaxtað og varðveitt á bestu kjörum í viðskiptabanka sjóðsins.

Tekjur VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs, auk vaxta af stofnframlagi eru endurhæfingargjöld atvinnurekenda sem greiða 0,13% af heildarlaunum starfsmanna, samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 17. febrúar 2008 mun ríkissjóður leggja fram sömu fjárhæð og atvinnurekendur frá og með 1. október 2009. Stefnt er að því að semja við lífeyrissjóði um að greiða framlag gegn því að VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður yfirtaki skuldbindingar þeirra varðandi starfsendurhæfingu sjóðsfélaga. Heimilt er stjórn að mynda varasjóð til að mæta sveiflum í rekstri sjóðsins, en verði hagnaður af starfsemi sjóðsins skal honum varið í samræmi við markmið stofnskrár til almenningsheilla, sbr. 4. tl. 4. gr. laga nr. 90/2003.

13. gr.
Samstarf við aðra aðila
VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður getur átt samstarf við aðra aðila og gert við þá samninga til lengri eða skemmri tíma til að vinna að markmiðum og verkefnum sjóðsins.

14. gr.
Breytingar á skipulagsskrá
Skipulagsskrá þessari verður aðeins breytt samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða á ársfundi og að fengnu samþykki þeirra aðila sem hafa lagt fram minnst 2/3 hluta þess stofnfjár sem farið er með atkvæði fyrir. Til að auka skuldbindingar aðila þarf þó samþykki þeirra allra.

15. gr.
Slit sjóðsins
Starfsemi VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs verður einungis slitið með ákvörðun samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða á ársfundi og að fengnu samþykki þeirra aðila sem hafa lagt fram minnst 2/3 hluta þess stofnfjár sem farið er með atkvæði fyrir stofnaðila sjóðsins. Verði starfsemi sjóðsins lögð niður skal eignum ráðstafað í samræmi við markmið hans.

16. gr.
Staðfesting
Þar sem ákvæði samþykkta þessara ná ekki til um hvernig með skuli farið, skal hlíta ákvæðum laga um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur nr. 33/1999, svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt.

Skipulagsskráin var upphaflega staðfest á stofnfundi Endurhæfingarsjóðs þann 19. maí 2008 til að efna ákvæði kjarasamninga ASÍ og SA frá 17. febrúar 2008.

Skipulagsskránni var breytt á aukastofnfundi þann 8. janúar 2009, þar sem nafni sjóðsins var breytt í Starfsendurhæfingarsjóð, stofnaðilum fjölgað með aðkomu samtaka launafólks á opinberum vinnumarkaði og opinberra atvinnurekenda, fjölgað í stjórn og tekin inn ákvæði um framkvæmdastjórn.

Skipulagsskránni var breytt á ársfundi þann 12. apríl 2011 þar sem nafni sjóðsins var breytt í VIRK – Starfsendurhæfingarsjóður og síðustu málsgrein 5. greinar er varðar tilnefningu í framkvæmdastjórn var breytt.

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf