Virk Starfsendurhæfingarsjóður

  Í okkar starfi leggjum við áherslu á: ·         Jákvæða nálgun.  Við viljum hafa jákvæð áhrif á einstaklinga, atvinnurekendur, stéttarfélög, opinbera

Áhersluþættir

 

Í okkar starfi leggjum við áherslu á:

·         Jákvæða nálgun.  Við viljum hafa jákvæð áhrif á einstaklinga, atvinnurekendur, stéttarfélög, opinbera aðila og fagaðila til að ná sem bestum árangri.

·         Gott samstarf.  Við leggjum áherslu á gott samstarf við alla þá aðila sem koma með einum eða öðrum hætti að starfsendurhæfingu einstaklinga.  Við viljum einnig leggja okkar af mörkum til að stuðla að góðu samstarfi mismunandi aðila með hagsmuni þeirra einstaklinga að leiðarljósi sem þurfa á þjónustu og aðstoð að halda.

·         Að nýta úrræði og byggja upp úrræði í nærumhverfi einstaklingsins.  Það er mikilvægt að einstaklingar um allt land hafi aðgang að góðri þjónustu í sinni heimabyggð og þjónustan taki mið af aðstæðum einstaklinga á hverjum stað.

·         Að mæta fólki þar sem það er statt hverju sinni.  Til að geta haft jákvæð áhrif á einstaklinga þá þarf að vera til staðar skilningur á aðstæðum og líðan – aðeins þannig er unnt að taka næsta skref fram á við. Með góðri samvinnu beggja aðila náum við árangri saman.

·         Virkni einstaklinga.  Við viljum horfa á styrkleika hvers einstaklings og leggja áhersla á þá eiginleika og hæfileika sem eru til staðar.  Út frá þeirri stöðu er skoðað hvernig unnt er að auka starfshæfni einstaklingsins eða viðhalda henni – allt eftir aðstæðum.

·         Að skapa rými fyrir alla.  Það þarf að vera rými fyrir einstaklinga með mismunandi færni og hæfni í okkar samfélagi.  Með auknu rými aukum við möguleika allra einstaklinga til að taka virkan þátt í  samfélaginu.

·         Að efla þekkingu og reynslu.  Við viljum efla þekkingu og reynslu á sviði starfsendurhæfingar á Íslandi. 

 

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf