Virk Starfsendurhæfingarsjóður

  Stofnaðilar Starfsendurhæfingarsjóðs eru: Alþýðusamband Ísland Samtök atvinnulífsins Bandalag starfsmanna ríkis og bæja Bandalag

Um Starfsendurhæfingarsjóð

 

Stofnaðilar Starfsendurhæfingarsjóðs eru:

Alþýðusamband Ísland
Samtök atvinnulífsins
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
Bandalag háskólamanna
Kennarasamband Íslands
Fjármálaráðherra
Reykjavíkurborg
Launanefnd sveitarfélaga

Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignastofnun sem var upphaflega stofnuð af Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins í maí 2008.  Í janúar 2009 var síðan undirrituð ný stofnskrá sjóðsins með aðkomu stéttarfélaga og atvinnurekenda á opinberum vinnumarkaði.   Sjóðurinn byggir á samkomulagi um nýtt fyrirkomulag starfsendurhæfingar í kjarasamningum á vinnumarkaði á árinu 2008.

Stefnt er að því að að í heild verði ráðstafað 0,39% af launum til Starfsendurhæfingarsjóðs.  Í fyrsta áfanga greiða atvinnurekendur 0,13% af öllum launum og í öðrum áfanga sem hefst á árinu 2009 er miðað við að ríkissjóður leggi Starfsendurhæfingarsjóði til sömu upphæð og launagreiðendur.   Í þriðja áfanga sem hefst í ársbyrjun 2010 er stefnt að því að lífeyrissjóðir komi inn með sama framlag og launagreiðendur. 

Með kjarasamningum ASÍ og SA í febrúar 2008 var undirrituð yfirlýsing um uppbyggingu sjóðsins, þessa yfirlýsingu í heild sinni er að finna hér

Með því að smella á flokkana hér fyrir neðan fást ítarlegri upplýsingar um hlutverk, stefnu, verkefni og áhersluþætti sjóðsins ásamt upplýsingum um stjórn, starfsmenn og skipulagsskrá.

 

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf