Virk Starfsendurhæfingarsjóður

Klúbburinn Strókur Stakkarholti 22, Selfossi. Sími 482 1757 Netfang: klubburstrokur@simnet.is Klúbburinn Strókur er félagsskapur fyrir þá sem eiga /  hafa

Starfsendurhæfingarúrræði

Klúbburinn Strókur 
Stakkarholti 22, Selfossi. Sími 482 1757 Netfang: klubburstrokur@simnet.is

Klúbburinn Strókur er félagsskapur fyrir þá sem eiga /  hafa átt við geðræn vandamál að stríða. Starfið byggir á þátttöku félagsmanna og starfsmanna. Klúbburinn Strókur byggir á sömu hugmyndafræði og Klúbburinn Geysir sem er Fountain House stefnan. Strókur er opinn mánudaga til föstudaga kl 8:30-15.00

Björgin
Geðræktarmiðstöð Suðurnesja, Suðurgötu 12 og 15 í Reykjanesbæ, Sími: 421-6744 Netfang: bjorgin@reykjanesbaer.is
Björgin - Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er endurhæfingar-úrræði fyrir fólk með geðheilsuvanda. Endurhæfingin er einstaklingsbundin og tekur mið af þörfum hvers og eins. Helsta markmið hennar að hjálpa einstaklingum til sjálfshjálpar. Endurhæfingunni er skipt í fimm þætti; Athvarf, iðju, hópastarf, eftirfylgd og geðræktarskóla.  Björgin er opin frá 10:00 til 16:00 alla virka daga.
Frekari upplýsingar má finna á  http://www.bjorgin.is/
Hægt er að panta ráðgjafarviðtal í síma 421-6744.
Markmið Bjargarinnar eru:                                                                                                               
• Að rjúfa félagslega einangrun
• Að efla sjálfstæði einstaklinga með geðheilsuvanda
• Að auka samfélagsþátttöku einstaklinga með geðheilsuvanda
• Að draga úr stofnanainnlögnum
• Að auka þekkingu almennings á geðheilbrigðismálum
• Að þjálfa einstaklinga í atvinnutengdri hegðun og endurhæfa þá til náms eða út á vinnumarkað.

Samvinna - Starfsendurhæfing Suðurnesja
Krossmóa 4, 260 Reykjanesbær, samvinna@starfs.is, Gerður Pétursdóttir,
verkefnastjóri, sími: 412-5960   gsm: 841 6566. Veffang: http://www.starfs.is/

Hlutverk Samvinnu er að veita starfsendurhæfingu einstaklingum sem vegna veikinda, slysa og/eða félagslegra erfiðleika eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn. Þátttakendur eru einstaklingar sem eru á örorku/ endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum, fólk sem er á bótum hjá svæðisvinnumiðlun eða sveitarfélagi. Þjónusta Samvinnu nýtist þeim einstaklingum sem vilja á markvissan hátt vinna að því að breyta stöðu sinni og stefna út á vinnumarkaðinn á ný.

Markmið
• Að endurhæfa þátttakendur til vinnu
• Að stuðla að auknum lífsgæðum þátttakenda
• Að stuðla að auknum lífsgæðum fjölskyldu þátttakandans

Samvinna býður upp á heildstæða úrlausn á vanda hvers þátttakanda eins og kostur er á í samvinnu við félags- og heilbrigðisyfirvöld og mennta- og fræðslustofnanir og aðra hagsmunaaðila á svæðinu. Þátttakandi er sjálfur virkur í sinni endurhæfingu frá upphafi þar sem hann kemur með virkum hætti að gerð sinnar endurhæfingaráætlunar. Endurhæfingin er einstaklingsbundin og tekur mið af þörfum einstaklingsins. Um er að ræða námstengda endurhæfingu og heldur Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum utan um þann þátt og fer kennslan fram í húsnæði þeirra.
Auk þess er boðið upp á fjármálaráðgjöf, sálfræðistuðning, hópefli, sjálfsstyrkingu og líkamsþjálfun og ýmsa aðra sérsniðna meðferð eða ráðgjöf.

Í október 2008 hóf byrjaði fyrsti hópurinn, sem taldi 20 nemendur, í febrúar 2009 bættust 30 í hópinn og nú eru um 50 manns í starfsendurhæfingu hjá Samvinnu. Með samstilltu átaki er bundin von um að sem flestir verði færir um að koma til baka á vinnumarkaðinn og efla þar með lífsgæði sín.

 
Birta - Starfsendurhæfing Suðurlands
Austurvegi 36, 800 Selfossi.
birta@birtastarfs.is

Starfsendurhæfing Suðurlands er sjálfseignarstofnun sem var formlega stofnuð 19. maí 2009. Stofnaðilar eru: Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, sveitarfélagið Árborg, Hveragerðisbær, Rangárþing ytra, sveitarfélagið Ölfus, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilsustofnun NLFÍ, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Suðurlandi, Vinnumálastofnun, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fræðslunet Suðurlands, Stéttarfélagið Báran, Verkalýðsfélag Suðurlands, verkalýðsfélagið FOSS, Verslunarmannafélag Suðurlands, Félag iðn- og tæknigreina, Festa lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Rangæinga og Árnesingadeild Rauða Kross Íslands.
Hlutverk Starfsendurhæfingar Suðurlands er að veita starfsendurhæfingu þeim einstaklingum sem vegna veikinda, slysa og félagslegra erfiðleika eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn.
Meginmarkmið Starfsendurhæfingar Suðurlands eru eftirfarandi:
 Að endurhæfa þátttakendur til vinnu.
 Að auka lífsgæði einstaklinga og fjölskyldna þeirra.
 Að þátttakandi verði virkur í samfélaginu að endurhæfingu lokinni, s.s. við vinnu, nám eða önnur verkefni.
 Að endurhæfing fari fram í heimabyggð.
Markhópur Starfsendurhæfingar Suðurlands er fólk sem er á örorku eða endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum, atvinnulausir og þeir sem eru á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.
Hugmyndafræði Starfsendurhæfingar Suðurlands gengur út á að þátttakendur komi sjálfir að sinni endurhæfingu með virkum hætti. Unnið er með vanda einstaklinga á heilstæðan hátt. Hlutverk Starfsendurhæfingar Suðurlands er að útvega þátttakendum þá aðstoð/þjónustu sem þeir þurfa, hvort sem um sálrænan, félagslegan eða heilsufarslegan vanda er að ræða. Boðið verður upp á náms- og starfstengda endurhæfingu, ýmis námskeið, heilsueflingu, stuðning og sjálfsstyrkingu. Endurhæfingin miðar að því að einstaklingar fari í áframhaldandi nám eða á vinnumarkað.
Fyrir hverja? Þjónusta Starfsendurhæfingar Suðurlands hentar þeim einstaklingum sem hafa vilja og áhuga til að breyta stöðu sinni og stefna út á vinnumarkaðinn á ný.
Að þjónustu Starfendurhæfingar Suðurlands munu koma ýmsir sérfræðingar þeirra stofnana sem að henni standa, s.s. læknar, sálfræðingar, félagsráðgjafar, ráðgjafar vinnumiðlunar, stéttarfélaga og lífeyrissjóða.

Verið er að móta starfsemina og verður hún kynnt betur þegar/ef styrkur fæst til starfseminnar.





Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf