Flýtilyklar
Ráðgjöf og námskeið
Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum
Skólavegi 1 230 Reykjanesbær Sími 421 7500 http://www.mss.is/
Lestrarerfiðleikar fullorðinna
MSS leiðir átak þar sem einstaklingar sem telja sig eiga við lestrarerfiðleika að
stríða geta fengið greiningu og ráðgjöf í framhaldi af því. Stéttarfélögin VSFK, VS, STFS og FIT koma að þessu
átaki og niðurgreiða greiningu fyrir félagsmenn sína. Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Önnu Lóu
Ólafsdóttur í síma 421 7500 eða annaloa@mss.is.
Náms- og starfsráðgjöf
MSS býður upp á náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga. Náms- og
starfsráðgjafi getur veitt:
- upplýsingar um nám og störf
- aðstoðað við að kanna áhugasvið og hæfni (áhugasviðsgreining)
- upplýsingar um mögulegar námsleiðir og styrki
- aðstoð við að setja markmið og útbúa námsáætlun
- tækifæri til að setjast niður með hlutlausum aðila og skoða stöðu sína almennt
MSS býður upp á þjónustu náms- og starfsráðgjafa á vinnustöðum og ráðgjöf fyrir einstaklinga í
húsnæði MSS.
Til að fá nánari upplýsingar um þjónustuna eða til að bóka viðtöl, áhugasviðsgreiningu eða kynningar á
vinnustöðum er hægt að hafa samband við Önnu Lóu Ólafsdóttur náms- starfsráðgjafa í síma 421 7500 eða annaloa@mss.is.
Áhugasviðsgreining
Með áhugasviðsgreiningu er verið að finna tengsl milli persónuleika og áhugamála annars vegar og
starfsgreina hins vegar. Þau geta verið gagnleg ef einstaklingur er í vafa um hvað hann vill gera í framtíðinni en út úr greiningunni koma
hugmyndir að starfssviði sem er líklegt að einstaklingnum muni líða vel í. Ef þú ert ekki viss um hvað þú vilt gera í
framtíðinni eða vilt fá staðfestingu á að þú sért á réttum stað í dag er áhugasviðsgreining kannski
eitthvað fyrir þig.
Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Önnu Lóu Ólafsdóttur náms- starfsráðgjafa í
síma 421 7500 eða annaloa@mss.is.
Brautargengi. Stjórnendur
Námskeið fyrir konur um stofnun og rekstur fyrirtækja. Ef þú lumar á góðri
viðskiptahugmynd sem þig langar að þróa áfram, kanna möguleika á að hrinda hugmyndinni í framkvæmd, læra um stofnun og rekstur
fyrirtækja og læra að koma hugmyndum þínum á framfæri þá er BRAUTARGENGI fyrir þig. Námskeiðið hentar fyrir þá
sem eru með viðskiptahugmynd, ætla að hefja rekstur eða eru nú þegar í rekstri. Námskeiðið er um 70 klst. að lengd og er kennt á 14
vikum og fer kennsla fram á fimmtudögum kl. 10:00 – 14:30. Leiðbeinandi: Frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Tími: Hefst 13. september.
Verð: kr. 38.000. Námskeiðið er niðurgreitt af Atvinnuþróunarráði SSS. Skráning fer fram hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands.
Stofnun og rekstur smáfyrirtækja Stjórnendur
Farið er yfir helstu grunnatriði áður en rekstur hefst og leiðbeint um fyrstu skrefin. Farið í gegnum verkefni þar sem fram kemur flest það sem
mætir þeim sem hefja rekstur, s.s. útreikning og skil til skattyfirvalda, bókhald o.fl.
Leiðbeinandi: Helga Erla Albertsdóttir. Tími: 8. september og 27. október kl. 18:00 – 21:00. Ath. 2 námskeið.
Verð: Í boði Atvinnuþróunarráðs SSS
Fjármál heimilanna
Markmið námskeiðsins er að kenna þátttakendum að vera meðvitaðir um eigin
fjármál. Gera sér grein fyrir í hvað peningarnir fara og læra að koma skipulagi á fjármálin. Leiðbeinandi: Baldur Guðmundsson
Tími: 7. október kl. 20:00 – 22:00 Verð: Í boði Sparisjóðsins í Keflavík og MSS
Út úr skelinni
-létt ræðumennska fyrir fullorðna
- Viltu losna við feimni?
- Viltu efla sjálfstraust þitt?
- Viltu eiga léttara með að tjá þig?
- Viltu þora að taka til máls þegar eitthvað brennur á þér?
- Viltu verða afslappaðri fyrir framan aðra?
- Viltu verða jákvæðari og efla lífsgleðina?
Þá er þetta námskeið fyrir þig! Leiðbeinandi: Marta Eiríksdóttir. Tími: Hefst 6. október. Verð: kr. 27.500
Nám fyrir einstaklinga með lestrarörðugleika - Aftur í nám
Námið er 95 kennslustundir þar sem farið er í
sjálfsstyrkingu, íslensku, tölvur og unnið sérstaklega með lestrarerfiðleika. Stuðst er við Ron Davis aðferðina og eru 40 einkatímar
á námskeiðinu sem miða að því að námsmenn tileinki sér tækni til að halda athygli og úthaldi við lestur og skrift auk
þess að bæta lesskilning. Leiðbeinandi: Ýmsir sérfræðingar. Tími: Þegar þátttaka næst. Verð: kr. 54.000
Nám fyrir einstaklinga með lestrarörðugleika - Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun
Á námskeiðinu er lögð
áhersla á að námsmenn kynnist mismunandi aðferðum við að hjálpa sér sjálfir til að bæta sig í lestri og ritun meðan
á námskeiði stendur og eftir að því lýkur. Kennt er í litlum hópum og er námskeiðið 60 stundir að lengd. Áhersla er
lögð á að efla lesskilning, lestrarlöngun, úthald við lestur og stafsetningarfærni. Tími: Þegar þátttaka næst. Verð: kr.
9.000.-
.jpg)





















Stærra letur
Minna letur
