Flýtilyklar
Ráðgjöf og námskeið
Norðurland
Menntasmiðjan á Akureyri
Skólastíg 2 600 Akureyri Sími 460-1233 menntasmidjan@menntasmidjan.is
Í Menntasmiðjunni á Akureyri er boðið upp á nám í lífsleikni þar sem byggt er á hugmyndafræði
lýðháskólanna á Norðurlöndum um þríþætt nám þ.e. sjálfsstyrkingu, sköpun og hagnýta
þætti. Áhersla er lögð á samþættingu námsþátta og námið í heild aðlagað að þörfum
námshópsins hverju sinni. Nemendur hafa alltaf tillögu- og umræðurétt þegar fjallað er um hvað eigi að vera á dagskrá hverju sinni
og taka þannig þátt í mótun og þróun námsins.
Undanfarin ár hefur Menntasmiðja kvenna verið á haustönn, en á vorönn er ungt fólk í fyrirrúmi með Menntasmiðju unga fólksins. Menntasmiðjan er dagskóli þar sem viðvera er fimm til sex klukkustundir á dag í 14-16 vikur. Ekki þarf neinn sérstakan menntunarbakgrunn til að komast í Menntasmiðjuna og námið er sniðið að þörfum hvers og eins. Nemendur eru á öllum aldri og með allt frá barnaskólaprófi til háskólaprófs. Engin próf eru þreytt og lítil sem engin heimavinna sett fyrir. Nemendur eru hvattir til að vera virkir, sjálfs sín vegna og þeim gert grein fyrir að árangur námsins velti að mestu leyti á þeirra eigin virkni.
Markmið
Menntasmiðjan er nám fyrir lífið. Heildarmarkmiðið er aukin sjálfsþekking og sjálfsstyrkur, sem felst m.a. í að:
• finna nýja hæfileika eða rifja upp þá sem legið hafa í dvala
• kynnast sjálfri/sjálfum sér og öðrum á nýjan hátt
• þjálfa góð samskipti við sjálfa/n sig og aðra
• efla sköpunarkraftinn og finna nýja möguleika í núverandi lífsstöðu
• bæta við þekkingu á ólíkum sviðum
Farskóli Norðurlands Vestra
Skagfirðingabraut 21 550 Sauðárkrókur Sími 455 6010 Veffang: http://www.farskolinn.is/
Enska 1 – ætlað algjörum byrjendum
Megináhersla er lögð á talmálið; að byggja upp orðaforða og grunnatriði
málfræði.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Íslenska fyrir útlendinga 1 – 3. Icelandic for foreigners. Level 1 – 3.
Á fyrsta stiginu er farið í grunnþætti eins og
stafrófið; tölurnar; eintölu, fleirtölu og fallbeygingu algengustu nafnorða og algengustu sagnir. Verkefni tekin úr daglegu lífi, úr nánasta
umhverfi jafnt og íslensku samfélagi.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Þýska - Blönduós
Fyrir þá sem vilja auka við kunnáttu sína í þýsku. Til dæmis aðila í
ferðaþjónustu sem taka á móti þýskum ferðamönnum.
Í boði á fleiri stöðum ef áhugi er fyrir hendi, t.d. í Skagafirði.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Enska 2 – ætlað lengra komnum
Fyrir þá sem hafa nokkra undirstöðu í ensku eða þá sem hafa lokið ensku 1.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Danska – Hvad siger du?
Nú er gamla, góða Danmörk komin aftur í tísku. Stöðugt fleiri fara í styttri eða lengri
ferðir til Danmerkur: í helgarferðir, á námskeið, í skóla; lýðháskóla eða framhaldsnám.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Enska – fyrir karlmenn!
Ertu að fara á leik í enska boltanum? Viltu hressa upp á skólaenskuna?
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Sauðárkrókur
Icelandic for foreigners. Level 1 - 3
Level 1 (50 lessons) is for complete beginners. Level 2 (50 lessons) and level 3 (50 lessons) are for more advanced students. Level 3 includes
Icelandic grammar.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Færnimappa. Viltu fá góða yfirsýn yfir þekkingu þína og færni?
Færnimappa er gagnlegt hjálpartæki til
að styrkja stöðu þína í starfi, auka möguleika á starfsþróun, starfsframa eða við leit að nýrri vinnu. Einnig ef
þú hefur hug á því að fara í nám.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun
Fyrir þá sem lokið hafa Ron Davis námskeiði og fullorðnu fólki með stutta
skólagöngu og sem á við lestrar- og skriftarörðugleika að etja og hefur áhuga á að bæta sig.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Fagnámskeið 1 – fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu – staðkennt – 5 einingar
Persónuleg markmiðasetning, starf af lífi og sál, frumkvæði og framtakssemi, vinnuumhverfið, hreinlæti og snyrtimennska, að efla sjálfstraust
og öryggi, samtalstækni, gagnrýni, samskipti, bjartsýni og baráttuvilji og fl.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Sauðárkrókur
Grunnmenntaskólinn – staðkennt – tvær annir – Hofsós
Námið er ætlað fullorðnu fólki sem er eldra en 20 ára og með stutta formlega skólagöngu að baki.
Sjálfsstyrking og samskipti, námstækni, framsögn, íslenska, tölvur, enska, stærðfræði, verkefnavinna, þjónusta, náms- og
starfsráðgjöf, færnimappa og mat á námi og skólastarfi.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Hofsós
Hagnýt tölvuþekking – heima og í vinnu.
Hagnýtt námskeið sem eykur þekkingu og eflir tölvufærni við ýms verkefni heima og í vinnu.
Farið í ritvinnslu, töflureikni, internet og tölvupóst.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Ritvinnsla – eingöngu fyrir byrjendur
Fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í tölvum. Farið er rólega í alla hluti. Hver tími byrjar á stuttri upprifjun
úr síðasta tíma. Hvar: Í boði á öllum stöðum
Töflureiknir – fyrir byrjendur og lengra komna
Töflureiknir fyrir byrjendur með nokkra tölvuþekkingu. Róleg yfirferð. Lögð áhersla á hagnýt verkefni í samráði við
þátttakendur.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Hagnýt tölfræði
Farið verður í grunnatriðið tölfræðinnar og einnig hvernig hægt er að nýta
töflureikni til að auðvelda útreikninga.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Sauðárkrókur
Internet og tölvupóstur
Leitað er gagna og heimilda á netinu og unnið með tölvupóst. Nemendur æfðir í að nýta
sér alla möguleika póstforritsins Outlook, svo sem eins og dagbókina og verkefnaskráningu.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Glærugerð – Power Point
Fyrir þá sem vilja læra að setja upp góða glærusýningu til að leggja áherslu
á mál sitt eða búa til skemmtilega myndasýningu fyrir vini og ættingja.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Lesblinda fullorðinna – greining og ráðgjöf
Sjá nánar undir Ráðgjöf og þjónusta á
heimasíðu.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Náms- og starfsráðgjöf í Farskólanum
Langar þig í frekara nám eða viltu styrkja þig í starfi?
Viðtal við náms- og starfsráðgjafa sem veitir fólki á öllum aldri ráðgjöf og upplýsingar til að auðvelda
ákvarðanatöku vegna náms- og starfsvals.
Betri líðan á vinnustað - samskipti
3ja tíma námskeið ætlað vinnustöðum, þar sem gert er ráð fyrir að
allir starfsmenn taki þátt.
Tímar eftir samkomulagi fyrir hópa eða fyrirtæki.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Enska – brú – nýtt námsefni
Fyrir þá sem hafa lokið ensku 1 eða 2 og þá sem eru lengra komnir og hafa til
dæmis áhuga á að fara í fjarnám í ensku í framhaldsskóla en vilja fara í upprifjun áður.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: Í boði á öllum stöðum
Fræðslumiðstöð Þingeyinga
Garðarsbraut 5 640 Húsavík Sími 464 0444 Veffang: http://www.hac.is/
Þekkingarsetur Þingeyinga er miðstöð símenntunar, háskólanáms og rannsókna í Þingeyjarsýslum.
Þekkingarsetur Þingeyinga stendur fyrir námskeiðum og hefur milligöngu um nám í samstarfi við einstaklinga og atvinnulífið. Setrið rekur
háskólanámssetur með þjónustu og vinnuaðstöðu fyrir háskólanema á svæðinu. Einnig er setrið miðstöð
rannsókna á svæðinu, og hýsir til lengri og skemmri tíma fólk, stofnanir og fyrirtæki sem stunda rannsóknir í
héraðinu.
Þekkingarsetur Þingeyinga hefur skilgreindu hlutverki að gegna á sviði símenntunar og fullorðinsfræðslu í Þingeyjarsýslum.
Þetta hlutverk var áður í höndum FræÞings, Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga sem sameinuð var Þekkingarsetrinu í
júní 2006. Þekkingarsetrið er nú ein af níu símenntunarmiðstöðvum á landinu sem menntamálaráðuneytið
fjármagnar að nokkru leyti. Hlutverk Þekkingarsetursins á þessu sviði er að efla menntunarmöguleika í Þingeyjarsýslum.
Þetta er gert með því að bjóða upp á námskeið tengd atvinnulífi og tómstundum og hafa milligöngu um
fjarnámsframboð í héraðinu í samráði við skóla á viðkomandi skólastigum. Þekkingarsetrið sinnir einnig
námsráðgjöf og stuðningi við námsfólk og fólk sem hyggur á nám. Þekkingarsetrið vinnur jafnframt með
fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum við mótun símenntunarstefnu þeirra og framkvæmd stefnunnar. Skráning á öll
námskeið fer fram í síma 464 0444 alla virka daga frá kl 9:00 til 15:00. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda póst
á netfangið gudrun@hac.is og þarf þá að fylgja nafn, heimilisfang símanúmer og kennitala.
Skráningu á námskeið þarf að vera lokið fjórum virkum dögum áður en námskeið á að hefjast. Námskeið sem
eru ódagsett verða auglýst sérstaklega þegar dagsetning hefur endanlega verið ákveðin.
Á hverri önn er nokkur fjöldi námskeiða er óstaðsettur og verða þau námskeið haldin þar sem þátttaka fæst.
Þetta er gert með það að markmiði að auka sveigjanleika í námskeiðahaldinu og gefa fleirum tækifæri á nánast hvaða
námskeiði sem er. Þá verður leitast við að leysa vanda fámennra svæða ef þátttakendur reynast of fáir til að fylla
námskeið. Það er því mjög áríðandi að áhugasamir um auglýst námskeið hafi samband og láti skrá sig,
þannig verður hægt að finna leiðir fyrir sem allra flesta til að stunda það nám sem þeir óska.
Í mörgum tilvikum eiga einstaklingar sem sækja námskeið hjá Þekkingarsetrinu rétt á námskeiðsstyrk frá sínu
stéttarfélagi. Oftast greiðir þátttakandinn námskeiðsgjaldið í upphafi en framvísar síðan reikningnum
stéttarfélagsins. Kannaðu þína möguleika á námsstyrkjum ef þú hefur hug á að sækja námskeið eða fara
í frekara nám.
Tölvunámskeið á heimaslóð.
Þekkingarsetur Þingeyinga hefur yfir að ráða fartölvuveri með 15 fullbúnum
fartölvum til kennslu. Tölvuverið er hægt að taka með sér nánast hvert sem er þar sem aðstaða er til að setja upp tölvur.
Þekkingarsetrið hvetur alla, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök til að kynna sér þessa möguleika til námskeiðahalds. Reynt verður
að koma til móts við allar óskir og þarfir til námskeiðahalds með færanlega tölvuverið í farteskinu.
Námsþjónusta
Þekkingarsetur Þingeyinga býður upp á ýmsa þjónustu fyrir námsmenn sem og fyrirtæki og
stofnanir þegar kemur að námi og starfi.
Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafi ÞÞ sinnir aðallega verkefninu „Þitt val – þín
leið. Námsráðgjöf á vinnustað“ sem unnið er í samvinnu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins,
símenntunarmiðstöðvanna og aðildarfélaga ASÍ. Markmið verkefnisins er að hvetja starfsmenn fyrirtækja og stofnanna til að bæta við
sig þekkingu, auka færni og bjóða félagsmönnum stéttarfélaganna upp á náms- og starfsráðgjöf á vinnustað.
Forsvarsmenn fyrirtækja og félagsmenn stéttarfélaganna, í samstarfi við þá, geta óskað eftir heimsókn náms- og
starfsráðgjafa á vinnustaðinn sinn með því að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Þekkingarsetursins. Að auki sinnir
náms- og starfsráðgjafi ÞÞ þó allri almennri náms- og starfsráðgjöf fyrir háskólanema og aðra sem þarfnast
leiðsagnar varðandi nám, störf og áhugasvið. Þeir sem vilja nýta sér þjónustu náms- og starfsráðgjafa geta haft
samband við Erlu Dögg með því að senda póst á netfangið erladogg@hac.is eða hringt í
síma 464-0444.
Fjarfundabúnaður
Þekkingarsetur Þingeyinga hefur á undanförnum misserum unnið markvisst að því að koma upp
námsaðstöðu með fjarfundarbúnuðum víðs vegar um báðar Þingeyjarsýslurnar. Nú er svo komið að 6
fjarfundabúnaðir eru staðsettir utan Húsavíkur og eykur það enn frekar möguleika fólks til að stunda fjarnám eða sækja fundi.
Þekkingarsetrið vinnur að því í samstarfi við sveitarfélögin að byggja upp og bæta námsaðstöðu og námsver
á þjónustusvæðinu.
Fjarfundabúnaðir Þekkingarsetursins eru staðsettir í Kiðagili í Bárðardal, Laugum í Reykjadal, Reykjahlíð, Kópaskeri,
Raufarhöfn og Þórshöfn.
Austurland
Þekkingarnet Austurlands
Tjarnarbraut 39e 700 Egilsstaðir Veffang: http://tna.is/
Þekkingarnet Austurland rekur Háskólanámssetur FNA á Egilsstöðum samkvæmt sérstökum samningi við Menntamálaráðuneytið. Auk þess tekur ÞNA þátt í rekstri námsvera á nokkrum stöðum á Austurlandi í samstarfi við framhaldsskóla og sveitarfélög. Þekkingarnet Austurlands er samstarfsvettvangur fræðslustofnana, atvinnulífs og sveitarfélaga. Það er hins vegar ekki skóli, heldur er það tengiliður milli þeirra aðila sem sinna formlegri háskólakennslu og þeirra sem bjóða upp á símenntun og fullorðinsfræðslu annars vegar og hins vegar einstaklinganna, fyrirtækja og stofnana á Austurlandi. Þekkinganet Austurlands kynnir, miðlar og skipuleggur nám sem einstaklingar og fyrirtæki í fjórðungnum kunna að þurfa og óska eftir hverju sinni. Það leggur á ráðin með faghópum ýmis konar sem vilja bæta við þekkingu sína, um lengra eða styttra nám, útbýr sérvalin námskeið eftir óskum og sér um undirbúning þeirra s.s. útvegun kennara, húsnæðis o.fl Þekkingarnet Austurlands kemur á framfæri óskum íbúa Austurlands við samstarfsaðila sína og getur einnig haft frumkvæði að námsframboði.
Vinur minn tölvan I
12 kennslustundir
Verð: 17.000,-
Á námskeiðinu læra nemendur helstu grunnatriði við tölvunotkun og hvað skiptir máli við kaup á tölvu. Nemendur
þjálfast í að setja upp sitt eigið viðmót og læra að skipuleggja í möppur. Kynnt eru ritvinnsluforrit og hvernig tölvan tengist
jaðartækjum s.s. prentara, myndavél o.fl. Nemendur kynnast tölvupósti og að leita á internetinu. Námskeiðið er fyrir algjöra
byrjendur.
Vinur minn tölvan II - framhald
12 kennslustundir
Verð: 17.000,-
Námskeiðið er fyrir þá sem hafa öðlast nokkuð öryggi í grunnatriðum í tölvunotkun, en þurfa að halda grunnfærninni
við og vilja bæta við sig. Farið er dýpra í helstu atriði, s.s. að nota ritvinnsluforrit, internetið, tölvupóstinn, meðhöndlun
mynda og fleiri gagnleg forrit í tölvunni. Markmiðið er að nemendur öðlist færni í að nota mismunandi forrit og hjálpartæki sem
tölvan býður upp á og koma nemendur til með að gera sitt eigið verkefni í kennslustundum sem byggir á þessum þáttum.
Word I
12 kennslustundir
Verð: 17.000,-
Nemendur læra að nota helstu verkstikur forritsins og helstu aðgerðir í textavinnslu. Lögð er áhersla á að móta útlit texta, að
vista skjöl og að prenta. Einnig er farið í hvernig hægt er að leiðrétta texta á einfaldan hátt.
Word II
9 kennslustundir
Verð: 13.000,-
Gert er ráð fyrir að nemendur kunni grunnatriði við textavinnslu. Kennt er hvernig myndir eru settar inn í texta og unnið með skrautletur. Unnið er með
útlistmótun skjala, hvernig rekja má breytingar í skjali og kynntar ýmsar aðferðir sem létta vinnu á stórum skjölum. Nemendur
læra að útbúa frumskjöl, límmiða ofl.
Excel I
18 kennslustundir
Verð: 25.000,-
Markmiðið er að nemendur læri grunnatriði í Excel og öðlist skilning á uppbyggingu töflureikna. Farið verður í gerð
einfaldra formúla og reiknilíkana, viðhald þeirra og útlitsmótun. Nemendur læra einfalda gerð myndrita (línu- og súlurit) og
að beita prentskoðun og útprentun. Skoðaðir verða ýmsir möguleikar sem Excel býður upp á.
Námskeiðið er ætlað þeim sem eru byrjendur og þá sem kunna lítið í Excel.
Excel II
12 kennslustundir
Verð: 17.000,-
Námskeiðið er ætlað þátttakendum sem hafa nokkra reynslu af notkun forritsins. Farið verður m.a. í reiknimöguleika forritsins og hvernig
hægt er að sýna gögn á myndrænan hátt t.d. með því að nota köku-, línu- og súlurit.
PowerPoint, Publisher, Photoshop
12 kennslustundir
Verð: 17.000,-
Boðið er upp á grunn og framhaldsnámskeið í þessum forritum á þeim stöðum á Austurlandi sem næg þátttaka
fæst. Áhugasamir hafi samband við starfsmenn ÞNA og við setjum námskeið af stað þegar náðst hefur
lágmarksþátttaka.
Office 2007
Námskeið ætlað reyndum notendum að Office pakkanum sem vilja kynna sér helstu nýjungar sem til staðar eru í Office 2007
og æfast í notkun þeirra.
Efninu hefur verið skipt í 3 þriggja kennslustunda námskeið þar sem farið er yfir ákveðna þætti hverju sinni. Þátttakendur
geta valið hvort þeir taka alla hlutana eða hvort þeir velja að taka þátt stök kvöld.
Joomla 1.5 – vefumsjónarkerfi
4 kennslustundir
Verð: 7.500,-
Joomla er vinsælasta vefumsjónarkerfi í heimi. Farið verður yfir grunnþætti kerfisins á námskeiðinu og lögð áhersla á
efnisinnsetningu í gegnum kerfið. T.d. fréttir, myndir, viðburði ofl. Námskeiðið er ætlað byrjendum sem vilja kynna sér uppbyggingu og notkun
vefumsjónarkerfa og möguleika þeirra.
Stafrænar myndavélar – fyrir byrjendur
6 kennslustundir
Verð: 10.000,-
Fjallað er almennt um stafrænar myndavélar, mismunandi gerðir, stillingar og almennar forstillingar sem henta við mismunandi aðstæður svo sem mismunandi
veðurskilyrði, sjónarhorn, lýsingu og margt fleira. Einnig verður farið yfir hvernig myndir eru færðar yfir á tölvu.
Markmiðið er að nemendur kynnist stafrænu myndavélinni sinni betur og geti þannig tekið betri myndir. Námskeiðið er sniðið fyrir byrjendur
sem hafa áhuga á ljósmyndun og hafa ekki mikla reynslu eða þekkingu.
Myndvinnsla I
3 kennslustundir
Verð: 6.000,-
Kennd eru grunnatriðin í meðhöndlun stafrænna ljósmynda með aðstoð forrita úr Office pakkanum sem flestir hafa aðgang að. Kennd ýmis
grunnatriði varðandi meðferð ljósmynda, t.d. hvernig laga má lýsingu, liti og rauð augu. Fjallað um úrvinnslu stafrænna ljósmynda og
hvernig hægt er að nota ljósmyndir í skjölum.
Myndvinnsla II
3 kennslustundir
Verð: 6.000,-
Framhaldsnámskeið fyrir þá sem lokið hafa myndvinnslu 1 og vilja kynnast fleiri notkunarmöguleikum Office pakkans við meðferð ljósmynda. Kenndar
verða aðferðir sem fela í sér notkun ljósmynda, súlurita og grafa í skýrslugerð og einnig notkun ljósmynda og texta í
bæklingum og auglýsingagerð. Þátttakendur kynnast grunnatriðum í uppsetningu og hönnun.
Tölum ensku I
20 kennslustundir
Verð: 18.000,-
Tungumálakunnátta og þá sérstaklega að geta bjargað sér á ensku þykir sjálfsögð og almenn færni í dag. Aukin
alþjóðleg samskipti og hreyfanleiki fólks milli landa kallar á betri kunnáttu og þjálla talmál. Við þurfum að geta
brugðið ensku fyrir okkur í margvíslegum aðstæðum. Markmið námskeiðs er að þjálfa og auka öryggi í ensku
talmáli, að byggja upp góðan orðaforða og að æfa talmál í aðstæðum sem eru sem rauverulegastar.
Tölum ensku II
20 kennslustundir. Verð: 18.000,-
Námskeiðið er fyrir þá sem setið hafa Ensku I eða hafa nokkra undirstöðu í málinu. Áhersla lögð á talmál,
uppbyggingu orðaforða, skrift og lestur. Gerðar eru talæfingar og framburður æfður.
Tölum ensku III
20 kennslustundir
Verð: 18.000,-
Fyrir þá sem lokið hafa Tölum ensku II, og þeir sem hafa gott vald á ensku og vilja þjálfa hana frekar.
Líður öllum vel á þínum vinnustað?
4 kennslustundir
Fjallað verður um samskipti á vinnustað, rætt um einelti og unnið út frá eineltishring og kenningum Dan Olweusar.
Baujan, tilfinningalæsi og sjálfsstyrking
Tilfinningalegur þekkingargrunnur og þjálfun leiðir til sjálfstyrkingar.
Sjálfsstyrking Baujunnar er í því fólgin að þátttakendur læra betur á tilfinningar sínar og fá þjálfun i
því að tengja þær andlegri og líkamlegri líðan. Kennd er slökunaröndun í tengslum við tilfinningavinnu.
Markmið námskeiðsins:
• Að þátttakendur læri undirstöðuatriði í tilfinningavinnu ásamt slökunaröndun til sjálfshjálpar og séu
þar af leiðandi færari um að stjórna líðan sinni, hegðun og aðstæðum.
• Að þátttakendur eigi auðveldara með að setja sig í spor annarra
• Námskeiðið leggur til góðan tilfinningalegan þekkingargrunn sem þátttakendur geta síðan nýtt sér áfram,
mismikið eftir einstaklingum eins og gengur.
Námskeið í boði fyrir litla hópa og stofnanir.
Nánari upplýsingar og pantanir hjá Ragnhildi Jónsdóttur, ÞNA í síma 470 8030 eða netfangið ragnhildur@fna.is
Áhugasvið og starfsferill
8 kennslustundir
Áhrifavaldar náms- og starfsvals eru margir og þessu vali lýkur í raun aldrei, jafnvel þó við höfum gegnt sama starfinu í langan
tíma og hyggjum ekki á neinar breytingar. Breytingarnar koma til okkar og við þurfum að geta brugðist við þeim með því að vita hvert
við viljum stefna, hvernig við viljum efla okkur og hvaða hæfni við viljum þróa frekar. Hvert tímabil ævinnar hefur sín sérstöku
verkefni og á þessu námskeiði gefst tækifæri til að líta yfir farinn veg, taka saman fyrri kunnáttu og reynslu og kanna styrkleika og veikleika.
Á námskeiðinu er kennt að útbúa færnimöppu þar sem safnað er saman á skipulagðan hátt kunnáttu, reynslu og
færni. Boðið verður upp á námsráðgjöf í lok námskeiðs.
.jpg)





















Stærra letur
Minna letur
