Flýtilyklar
Ráðgjöf og námskeið
Heilsustöðin - sálfræði- og ráðgjafaþjónusta
Holtasmári 1, 6 hæð, 201 Kópavogur,
sími:534-8090, netfang:heilsustodin@heilsustodin.is, heimasíða: http://www.heilsustodin.is/
Svefnleysi - Námskeið:
Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi er árangursríkasta meðferðin sem völ er á, mun árangursríkari en svefnlyf. Fjöldi
rannsókna hefur staðfest þetta. Hópmeðferð getur borið jafn góðan árangur og einstaklingsmeðferð og meðal kosta þess að
sækja meðferð í hópi er að kostnaður er aðeins um helmingur kostnaðar við einstaklingsmeðferð.
Heilsustöðin býður upp á 5 vikna námskeið sem byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar við svefnleysi, þar sem 10-15
manns hittast undir leiðsögn sálfræðings vikulega, eina og hálfa klukkustund í senn. Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi í
hópi hentar flestrum fullorðnum sem þjást af svefnleysi. Þrátt fyrir að um hópmeðferð sé að ræða fær
þátttakendur ráðleggingar sem miða að þörfum og aðstæðum hvers og eins.
Áður en hægt er að skrá sig í hópmeðferð þarf að fara fram mat á því hvort hópmeðferð er hentugt
úrræði fyrir þig. Þú hefur val um tvær leiðir:
Mat á netinu: Tímabundið býður Heilsustöðin upp á frítt mat í gegnum vefinn. Þú svarar spurningum á vefnum og sendir til
okkar. Heilbrigðisstarfsmaður yfirfer svör þín og hefur samband við þig með upplýsingar um hvort hópmeðferð er hentugt
úrræði eða frekari ráðleggingar.
Matsviðtal á stofu: Þótt mat á netinu sé í flestum tilfellum nóg til þess að komast að því hvort
hópmeðferð við svefnleysi henti, getur í vissum tilfellum verið nauðsynlegt að meta vandann nánar í matsviðtali á stofu. Í
slíku viðtali eru orsakir svefnleysis greindar með nákvæmari hætti sem getur verið nauðsynlegt í flóknari tilfellum. Gjald fyrir matsviðtal
er samkvæmt gjaldskrá Heilsustöðvarinnar.
Upplýsingar um næstu námskeið má finna inn á http://www.heilsustodin.is/
Vegna mikillar eftirspurnar og takmarkaðs fjölda á námskeiði er ráðlagt að tryggja sér sæti sem fyrst.
Fræðslusetrið Starfsmennt
Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, sími 525-8395, netfang smennt@smennt.is, heimasíða www.smennt.is/
Fræðslusetrið Starfsmennt býður ríkisstarfsmönnum upp á starfstengda símenntun og veitir stofnunum heildstæða þjónustu
á sviði starfsþróunar. Þjónusta Starfsmenntar er sérsniðin að þörfum þátttakenda um allt land í krafti faglegs
samstarfsnets og öflugs vefkerfis. Markmið setursins eru að koma til móts við breytingar á starfsumhverfi og störfum starfsfólks með fræðslu
og ráðgjöf. Setrið býður því upp á fjölda námskeiða sem opin eru öllum og ætlað að efla almenna
færni í leik og starfi. Allar nánari upplýsingar má fá á http://www.smennt.is/ og í
síma 525 8395.
Starfsnám stuðningsfulltrúa- grunn- og framhaldsnám
Hér er um umfangsmikið samfellt starfsnám að ræða og telur grunnnámið alls 160 stundir og framhaldsnámið 80 stundir. Kennt er á morgnana
aðra hverja viku og hentar námið starfsmönnum sem vinna með fötluðum, öldruðum eða sjúkum, eða hyggja á störf á
þessum vettvangi.
Að tjá sig án kvíða (16 stundir)
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja ná tökum á frammistöðukvíða eða auka öryggi sitt í flutningi
máls.
Framrás 1 – Ég og starfið (36 stundir)
Hér er fjallað um mikilvægi heilbrigðs sjálfstrausts sem grunn að góðum samskiptum og vellíðan á vinnustað. Reyndir
sálfræðingar fjalla um gildi sjálfsmyndar og sjálfsþekkingar.
Nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur hjá ríkinu (32 stundir)
Megintilgangur námsins er að gera þátttakendur hæfari til að vinna með og virkja mannauðinn á hverjum vinnustað út frá
sérstöðu starfsumhverfis ríkisstofnana. Áhersla er lögð á skipulagningu og stjórnun starfsmannamála og að gefa yfirsýn yfir
fræðasviðið sem og hagnýt verkfæri.
Nám fyrir starfsmenn í stjórnunareiningum (54 stundir)
Markmið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir til að takast á við breiðara starfssvið og flóknari
verkefni sem aðstoðarmenn stjórnenda. Miklu skiptir að stjórnendur geti falið starfsfólki að fullvinna verkefni og tryggja góða yfirsýn.
Hér er stefnt að því að treysta grunn faglegra og úrræðagóðra starfsmanna með því að veita þeim innsýn
í stjórnunarfræði og treysta skipulags- og samstarfshæfni. Námið nýtist einnig þeim sem undirbúa sig fyrir störf á
nýjum vettvangi.
Rekspölur 1 (60 stundir)
Hér er lögð áhersla á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs ásamt umfjöllun um samfélagslega
innviði. Þetta nám hefur lagt grunn að frekara námi og þátttöku í félagsstörfum.
Verkefnastjórnun (24 stundir)
Hér er kynnt hugmyndafræði verkefnastjórnunar, helstu aðferðir, tæki og tól. Einnig er fjallað um hvernig verkefnastjóri getur virkjað
samstarfsfólk sitt til athafna og gildi góðs upplýsingaflæðis. Hér læra þátttakendur að halda utan um þróun hugmyndar
frá upphafi til enda án þess að tapa yfirsýn.
Talsmaður lærdóms (76 stundir)
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja greiða leið lærdóms og breytinga á vinnustað eða þróa hæfni sína
á því sviði. Þátttakendur þurfa að þekkja til mikilvægi símenntunar og hafa sýnt leiðtogafærni við
innleiðingu umbóta. Talsmaðurinn fær þjálfun í að greina góðar hugmyndir og koma þeim á framfæri. Þá þarf
hann eða hún a búa yfir góðum samskiptahæfileikum, vera lausnamiðaður í hugsun og hafa áhuga á velferð samferðamanna
sinna.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
http://www.nmi.is/
Miðstöðin heyrir undir Iðnaðarráðuneytið og starfar eftir lögum um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og
atvinnuþróun. Nýsköpunarmiðstöð Íslands leggur mikla áherslu á að vera í sterkum tengslum við bæði
atvinnulífið og háskólasamfélagið til að ná sem mestum árangri í rannsóknum og þróun sem bætt geta
íslenskt samfélag. Hlutverk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er að hvetja til nýsköpunar og efla framgang nýrra hugmynda í
íslensku atvinnulífi. Nýsköpun er forsenda fyrir fjölbreytni íslensks atvinnulífs og undirstaða sterkrar samkeppnisstöðu þess.
Námskeið í boði:
Verkefnastjórnun (10 klst)
Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði verkefnastjórnunar þar sem lögð er áhersla
á hagnýtar aðferðir við stjórnun verkefna. Markmiðið er að þátttakendur öðlist kunnáttu í gerð
framkvæmdaráætlana, kunnáttu í að meta óvissuþætti verkefna ásamt kunnáttu í þverfaglegu samstarfi.
Stofnun og rekstur smáfyrirtækja (35 klst)
Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði er varða stofnun og rekstur
smáfyrirtækja. Fjallað er um sölu-og markaðsmál, fjárhagsáætlanir, form fyrirtækja og skattamál. Áhersla er lögð
á gerð viðskiptaáætlana.
Vinnumálastofnun
http://www.vinnumalastofnun.is/
Ráðgjafasvið VMST býður náms-og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa.
Námskeið í gerð ferilskrár/kynningarbréfs (2 klst)
Farið í grunnatriði við gerð ferliskrár/kynningarbréfs.
Fjallað verður um helstu aðferðir í atvinnuleit.
Áhugasviðsgreining fyrir einstaklinga og hópa
Markmið er að greina tengsl áhugasviðs og starfsánægju. Að velja starf m.t.t.
áhugasviðs eykur líkur á ánægju og farsæld í starfi.
Sjáfsstyrkingarnámskeið-Stattu með þér (3 klst)
Atvinnumissir getur ógnað verulega sjálfsmynd og sjálfstrausti okkar,
þetta er sameiginleg reynsla þeirra sem fyrir því verða að missa atvinnu. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa ógn og hvernig
við getum tekist á við hana á uppbyggilegan hátt.
Breytingar-tækifæri/starfsleitarnámskeið (6 klst)
Markmið námskeiðinsin er að vetia þátttakendum tækifæri til
sjálfsskoðunnar og mats á þeim þáttum sem liggja til grundvallar farsælu starfsvali. Auk þess er farið yfir hagnýt atriði sem gagnast
geta í atvinnuleitinni.
Starfsleitarnámskeið fyrir útlendinga (3 klst)
Markmið að gefa þátttakendum aukið sjálfstraust í atvinnuleit , aukna
þekkingu á vinnumarkaðnum og kenna þeim leiðir til að koma sér á framfæri.
Vinnuklúbbur-aðstoð og aðstaða til atvinnuleitar (24 klst)
Viltu hafa aðgang að ráðgjöf og aðstöðu til atvinnuleitar?
Kynntu þér málið hjá ráðgjöfum
Námskeið og ráðgjöf um fjármál heimilanna (4 klst)
Á námskeiðinu ráðgjöf um fjármál
heimilanna verður fjallað um hvernig best verður tekist á við breytta fjárhagsstöðu. Ráðgjafi frá Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna sér um námskeiðið.
Námskeið hjá Kvíðamerðferðarstöðinni
Námskeið í kvíðastjórnun (16 klst)
Markmið námskeiðsins er að kenna fólki leiðir til þess að takast
á við kvíða og vanlíðan, auka sjálfstraust, bæta samskiptafærni og leysa úr vandamálum. Stuðst verður við
aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar.
Námskeið hjá Mími- símenntun ehf
http://www.mimir.is/
Sjálfsefling og samskipti (20 klst)
Markmið er að vinna gegn niðurbrjótanti áhrifum atvinnuleysis með því að efla
sjálfstraust og hæfni í mannlegum samskiptum.
Starfsleitarnámskeið-aftur til starfs (70 klst)
Markmið námskeiðsins er að styðja þátttakendur í starfsleit. Lögð er
áhersla á að eintaklingur beri kennsl á eigin færni og styrkleika, auki færni í ákvarðanatöku og markmiðasetningu.
Þátttakendur útbúa færnimöppu sem hefur reynst góður undirbúningur fyrir starfsumsókn og atvinnuviðtal.
Íslenska fyrir útlendinga (20 klst)
Unnið eftir nýrri námsskrá um íslensku fyrir útlendinga.
Námskeið hjá Nýja tölvu-og viðskiptaskólanum
Tölvubókhald-Navision Financials (60 klst)
Grunnuppbygging kerfisins, fjárhags- og launabókhald
Vefsíðugerð (60 klst)
Markmið er að þátttakendur geti að loknu námskeiði hannað og viðhaldið vefsíðum. Kennt
er á Photashop og Frontpage.
ECDL (TÖK) tölvunám (66 klst)
Farið er yfir Windows stýrikerfið og skráarmeðhöndlun. Þá er kennd Word ritvinnsla, Excel
töflureiknir, notkun Internetsins og tölvupóstur. Kennsla og námsgögn miða að því að gera nemendum kleift að taka alþjóðlegt
ECDL próf og fá þeir sem ljúka prófi alþjóðlegt skírteini.
Námskeið hjá Tölvuskólanum Þekkingu
Tölvunámskeið fyrir byrjendur (60 klst)
Námskeið ætlað þeim sem hafa enga tölvukunnáttu. Kennt er á eftirtalin forrit:
Windows tölvugrunn, Word grunn, Excel kynning, Internetið og tölvupóstur
Tölvunámskeið fyrir lengra komna (60 klst)
Markmið er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu í tölvunotkun
í starfi og öðlist öryggi og færni í notkun helstu skrifstofuforritanna, Word, Excel og Outlook
Tölvunám fyrir miðaldra og eldra fólk (60 klst)
Markmið að þátttakendur fái innsýn í notagildi PC tölvunnar,
öðlist góða undirstöðu í meðferð og notkun tölvu í daglega lífinu og undirbúi þátttakendur fyrir frekara
nám.
Önnur námskeið
Námskeið og aðstoð við lesblinda
Nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar.
Íslenska fyrir útlendinga
Unnið eftir nýrri námsskrá um íslensku fyrir útlendinga. Nánari upplýsingar hjá
r´ðagjöfum VMST.
Vinnuvélanámskeið- Öku og vinnuvélaskóli (80 klst)
Vinnuvélanámskeið gefur rétt til rófs á allar
gerðir og stærðir vinnuvéla. Námskeiðið er samkvæmt reglugerð Vinnueftirlits ríkisins, og forsenda þess að geta tkeið verklegt
próf á vinnuvélar. Verklegi þátturinn er ekki innifalinn í námskeiðinu.
Sterkari staða-Efling til starfs fyrir 50 ára og eldri (90 klst)
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Miðstöð símenntunar
í Hafnarfirði og er makrmi þess að styrkja þátttakendur og skerpa sýn þeirra á eigin færni og hæfileika.
Námsþættir eru m.a. almennt tölvu- og íslenskunám, sjálfsefling, samkipti og heilsuefling. Þátttakendur vinna færnimöppu.
Vinnuvernd ehf
Brautarholti 28 105 Reykjavík sími 578-0800 http://www.vinnuvernd.is/ vinnuvernd@vinnuvernd.is
,,Heilbrigðis– og lífsstílsráðgjöf er ný þjónusta sem Vinnuvernd býður upp á. Um er að ræða
einstaklingsráðgjöf fyrir þá sem óska eftir persónulegum stuðningi við að efla eigin heilsu. Ráðgjöfin er sniðin að
hverjum og einum, eftir því hvar viðkomandi stendur með tilliti til heilsu og lífsstíls. Í samvinnu við ráðgjafa Vinnuverndar eru
raunhæf markmið sett og fundnar mögulegar lausnir til að ná þeim. Einnig er í boði eftirfylgd ef óskað er eftir því.
Ráðgjafar Vinnuverndar eru allir háskólamenntaðir og með reynslu af heilbrigðis- og lífsstílsráðgjöf innan heilbrigðiskerfisins
sem og á hinum frjálsa markaði. Fullur trúnaður er milli ráðgjafa Vinnuverndar og þeirra sem til þeirra leita og eru engar viðkvæmar
persónuuplýsingar skráðar nema með samþykki viðkomandi.”
.jpg)





















Stærra letur
Minna letur
