Flýtilyklar
Ráðgjafi í starfsendurhæfingu
Ráðgjafar í starfsendurhæfingu hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga VIRK skipuleggur, fjármagnar og hefur umsjón með störfum ráðgjafa í starfsendurhæfingu hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga um allt land.
- Hlutverk ráðgjafanna er að aðstoða einstaklinga við að viðhalda og efla virkni til vinnu. Eitt af verkefnum ráðgjafa er meðal annars að
aðstoða starfsmenn og stjórnendur á vinnustöðum við að tryggja farsæla endurkomu til vinnu í kjölfar veikinda eða slyss.
Á heimasíðu sjóðsins http://www.virk.is/ eru upplýsingar um nöfn, staðsetningu,
símanúmer og póstföng allra ráðgjafanna.
- Ráðgjafi í starfsendurhæfingu metur starfshæfni starfsmannsins, bæði út frá heilsufarslegum og félagslegum þáttum.
- Ef starfsmaðurinn er lengi frá vinnu vegna veikinda aðstoðar ráðgjafinn hann við að vera í reglubundnu sambandi við vinnustaðinn. Hann
styður einnig starfsmenn í gerð áætlunar um að snúa aftur til starfa, í samráði við atvinnurekanda.
- Hann aðstoðar við gerð áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og starfsendurhæfingu. Ráðgjafinn fylgir þeirri áætlun eftir,
í samráði við starfsmannin.
- Ráðgjafinn veit hvernig starfsmaðurinn, atvinnurekandinn og ýmsir fagaðilar geta unnið saman að því að auka starfshæfni
starfsmannsins.
.jpg)





















Stærra letur
Minna letur
