Til vinnu á ný
í hálft starf
Gott samstarf ráðgjafa í starfsendurhæfingu og yfirmanna hjá Orkuveitunni varð til þess að Lára Baldursdóttir komst nokkrum
mánuðum fyrr til vinnu, heldur en gert var ráð fyrir samkvæmt reglum á vinnustaðnum. Hún segir það hafa skipt sköpum fyrir sig að geta
byrjað í hálfu starfi eftir margra mánaða veikindaleyfi.
,,Ég fór í mikla bakaðgerð í október 2009 en þá hafði ég verið algjörlega óvinnufær í tvo til
þrjá mánuði. Ég hafði um nokkurra ára skeið af og til verið slæm í baki. Þetta kom yfirleitt í köstum. Ég
reyndi að þrauka eins lengi og ég gat í vinnunni og fannst eiginlega best að standa við störf mín. Ég var þó alltaf með mikla verki
í þessum köstum, alveg niður í fætur, en verkjalyf virkuðu illa á mig,“ segir Lára sem starfað hefur hjá Orkuveitu
Reykjavíkur í rúm 10 ár.
Brjóskeyðing milli hryggjarliða
Rannsóknir leiddu í ljós brjóskeyðingu á milli hryggjarliða. ,,Það var líka farinn að vaxa beinnabbi út úr
því sem leit út fyrir að vera sprunga. Ég hef tvisvar dottið illa og sprungan kann að hafa myndast þá. Í aðgerðinni voru spengdir
saman tveir hryggjarliðir og settir demparar fyrir ofan. Það var tekið bein úr mjöðminni á mér og grætt við hryggjarliðina. Hefði
ég vitað hversu erfið aðgerð þetta var er ekki víst að ég hefði þorað að fara í hana. En ef ég hefði ekki farið
í þessa aðgerð væri ég núna heimaliggjandi öryrki og gæti ekkert gert. Ég gat engan veginn verið áður en ég fór
í aðgerðina,“ segir Lára.
Hún lá á sjúkrahúsi í þrjár vikur og var lengi að jafna sig heima á eftir. ,,Fyrstu mánuðina eftir aðgerðina
mátti ég ekki gera neitt annað en að fara út að ganga til þess að reyna að öðlast kraft á ný. Það var svo þegar
ég hringdi í BSRB til þess að kanna stöðu mína í sambandi við lengd veikindaleyfis og slíkt sem mér var bent á að hafa
samband við Karen Björnsdóttur, ráðgjafa í starfsendurhæfingu. Við hittumst fyrst í febrúar og það gerði mér afar gott
að rífa mig upp úr rúminu og hafa mig til fyrir fundina með henni. Viðmót hennar var svo gott og ég þurfti svo sannarlega á hjálp
hennar að halda við að hringja á milli stofnana. Veikindin svipta mann ekki bara allri líkamlegri orku, heldur andlegri líka. Það er nógu
flókið að snúast í svona málum þegar maður er heilbrigður, hvað þá þegar maður er illa haldinn af verkjum,“ greinir
Lára frá.
Gott að komast í
fasta rútínu
Hún segir ráðgjafann einnig hafa komið því til leiðar að hún fékk að byrja í hálfu starfi en það hafði ekki
verið í boði hjá Orkuveitunni. ,,Læknirinn minn hafði lagt til að ég byrjaði í 50 prósenta starfi í júní, færi
svo í 80 prósenta starf í júlí og í 100 prósenta starf í september að loknu sumarfríi í ágúst. Þetta var
ekki leyfilegt samkvæmt reglum á mínum vinnustað. Þar átti maður ekki að koma í vinnu fyrr en maður hefðu fulla starfsgetu. Karen
ráðgjafi gekk í málið og úr varð að ég fékk að haga þessu eins og læknirinn hafði lagt til. Yfirmaðurinn á
deildinni minni studdi mig líka vel í þessu ferli. Ef þetta hefði ekki gengið eftir hefði ég byrjað að vinna nokkrum mánuðum seinna en
ég gerði. Það gerði mér hins vegar afar gott að byrja að vinna og komast í fasta rútínu eftir svona langa fjarvist frá
vinnustaðnum. Ég var komin með hálfa starfsgetu og mér fannst óþarfi að sitja heima. Vissan um að ég myndi ekki ofgera mér um leið
og ég byrjaði að vinna var líka góð. Ég hlakkaði virkilega til þess að byrja að vinna en oft er fólk kvíðið við
tilhugsunina um að byrja í fullu starfi eftir löng veikindi.“
Notaleg tilfinning
Að sögn Láru hefur henni gengið vel að vinna fullan vinnudag. ,,Ég þyrfti að vísu að halda áfram í
sjúkraþjálfuninni sem Starfsendurhæfingarsjóður greiddi fyrir mig. Ég á nokkra tíma eftir en hef ekki kunnað við að biðja um
frí úr vinnu. Ég þarf hins vegar að gera það, meðal annars til þess að fá að vita hversu mikið ég má hreyfa
mig til þess að halda dampi. Ég veit reyndar að ég má ekki hlaupa. Karen hefur verið að spyrja mig að því hvort ég ætli ekki
að nýta mér alla tímana. Mér finnst frábært að hún skuli hafa samband við mig til þess að fylgjast með því
hvernig mér gengur. Það er mjög notaleg tilfinning og ég er afar þakklát fyrir alla aðstoðina sem ég hef fengið.“ |

,,Karen hefur verið að spyrja mig að því hvort ég ætli ekki að nýta mér alla tímana. Mér finnst frábært að
hún skuli hafa samband við mig til þess að fylgjast með því hvernig mér gengur. Það er mjög notaleg tilfinning og ég er afar
þakklát fyrir alla aðstoðina sem ég hef fengið.“
|