Flýtilyklar
Hvert á að leita?
Hvert á að leita?
Hægt er að leita eftir þjónustu ráðgjafa að eigin frumkvæði eða eftir ábendingu frá öðrum, t.d. frá starfsfólki heilsugæslunnar, trúnaðarmönnum á vinnustöðum, atvinnurekendum, samstarfsmönnum, félagasamtökum fjölskyldu, vinum og opinberum stofnunum.
Þú finnur upplýsingar um alla starfandi ráðgjafa hér. Einnig er hægt að hringja í
síma 5355700 og fá upplýsingar um til hvaða ráðgjafa þú ættir að leita.
Listi yfir ráðgjafa um allt land
Hver getur vísað mér á þjónustu
ráðgjafa?
Þú getur leitað eftir þjónustu ráðgjafa sjúkrasjóðs að eigin frumkvæði eða eftir ábendingu eða
tilvísun frá ýmsum aðilum.
Dæmi um algengar leiðir:
-
Þú sækir um dagpeninga hjá sjúkrasjóði stéttarfélags og er boðið viðtal hjá ráðgjafa.
-
Þú leitar sjálf(ur) aðstoðar hjá ráðgjafa ef vinnugeta þín er skert.
-
Þú leitar aðstoðar eftir ábendingu frá atvinnurekanda, stjórnanda, samstarfsmönum eða trúnaðarmönnum á vinnustað.
-
Þú leitar aðstoðar eftir ábendingu frá heilsugæslunni, læknum, sjúkrahúsum eða öðrum heilbrigðisstofnunum.
-
Þú leitar aðstoðar eftir ábendingu frá Vinnumálastofnun, félagsþjónustu sveitarfélagana, Tryggingarstofnun, lífeyrissjóðum, Rauða krossinum eða öðrum stofnunum, samtökum eða einstaklingum.
-
Þú leitar aðstoðar eftir ábendingu frá fjölskyldu eða vinum.
.jpg)





















Stærra letur
Minna letur
