Flýtilyklar
Hverjir eiga rétt á aðstoð?
Þjónusta VIRK er fyrir einstaklinga sem búa við skerta starfsgetu vegna heilsubrests og stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.
Hvenær á að leita aðstoðar?
- Ef þú ert fjarverandi frá vinnustað í lengri tíma vegna veikinda og til staðar eru hindranir við að snúa aftur í vinnu að loknum veikindum ættir þú að leita aðstoðar ráðgjafa.
- Ef þú hefur misst vinnu vegna heilsubrests, en getur farið aftur í vinnu með viðeigandi aðstoð frá ráðgjafa. Þetta á líka við um þá sem eru á örorkubótum og hafa áhuga á að taka meiri þátt í samfélaginu og komast aftur í vinnu.
- Ef þú ert atvinnulaus, en átt bágt með að fá vinnu vegna heilsutengdra hindrana, hvort sem þær eru andlegar, líkamlegar eða
félagslegar.
Hverjir eiga rétt á aðstoð?
Ef þú getur ekki stundað vinnu vegna heilsubrests þá átt þú rétt á þjónustu VIRK svo framarlega sem þú stefnir að því að verða aftur þátttakandi á vinnumarkaði.
Til að einstaklingar eigi rétt á þjónustu VIRK þá þurfa eftirfarandi skilyrði að vera uppfyllt:
- Til staðar er heilsubrestur sem veldur því að viðkomandi getur ekki sinnt launuðu starfi.
- Einstaklingur stefnir markvisst aftur á þátttöku á vinnumarkaði
- Einstaklingur hefur vilja og getu til að taka markvissan þátt í starfsendurhæfingunni
Ef þú heldur að það verði erfitt að fara aftur í vinnu eftir veikindi eða slys ættir þú að leita til ráðgjafa. Ekki bíða þar til veikindaréttur hjá atvinnurekanda er búinn eða þar til réttur til greiðslu sjúkradagpeninga er að verða búinn.
Nánari upplýsingar um það hverjir hafa gagn af þjónustu VIRK er að finna hér
.jpg)





















Stærra letur
Minna letur
