Virk Starfsendurhæfingarsjóður

  Það skiptir miklu máli að vinnuumhverfi sé heilsusamlegt og stuðli að eflingu á heilsu og hreysti starfsmanna.  Samkvæmt Vinnuverndarlögunum(nr.

Heilsuvernd og heilsuefling starfsmanna

 

Það skiptir miklu máli að vinnuumhverfi sé heilsusamlegt og stuðli að eflingu á heilsu og hreysti starfsmanna.  Samkvæmt Vinnuverndarlögunum(nr. 46/1980) ber atvinnurekandi ábyrgð á því að gerð sé áætlun um heilsuvernd starfsmanna. Það felur m.a. í sér að greina og meta áhættuþætti í vinnuumhverfinu og skipuleggja forvarnir. Um er að ræða forvarnarstarf sem tengist vinnunni, vinnustaðnum og vinnuaðstæðunum.

Umræður hafa verið um mismuninn á heilsuvernd og heilsueflingu á vinnustað. Munurinn á þessu tvennu er að heilsuvernd á vinnustað er sú heilsuvernd sem skylt er að hafa samkvæmt vinnuverndarlögunum og tengis áhættuþáttum starfa en heilsuefling miðast að því að efla heilbrigði og vellíðan starfsfólks.

Alþjóða vinnumálastofnunin skilgreinir heilsuvernd á vinnustað fyrst og fremst sem forvarnarstarf og ráðgefandi fyrir vinnuveitendur, starfsmenn og fulltrúa þeirra um öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. Óumdeilt er að aðstæður á vinnustað hafa áhrif á heilsuna og heilsa starfsmanna hefur áhrif á það hvernig þeir skila störfum sínum. (Leiðbeiningar um heilsuvernd á vinnustað er að finna á vef vinnueftirlits ríkisins:   Vinnueftirlit - leiðbeiningar um heilsuvernd á vinnustað

Með heilsuvernd starfsmanna er því átt við allar þær aðgerðir og ráðstafanir sem stuðla að heilbrigði og öryggi á vinnustað. Greina þarf og meta þá þætti í vinnuumhverfinu sem geta haft áhrif á líðan, heilsu og öryggi starfsfólks og gera fyrirbyggjandi ráðstafanir.

Heilsuefling á vinnustöðum er sameiginlegt verkefni vinnuveitenda, starfsmanna og samfélagsins alls og miðar að því að bæta heilsu og líðan vinnandi fólks. Með heilsueflingu á vinnustöðum er stefnt að því að bæta vinnuskipulag og vinnuumhverfi, hvetja til virkrar þátttöku og stuðla að áframhaldandi þroska einstaklingsins. Heilsueflingu á vinnustöðum er ætlað að efla mannauð vinnustaða með bættri heilsu og líðan. Vinnuveitendur sem hlúa að heilsu starfsmanna hafa ekki eingöngu jákvæð áhrif á starfsmennina heldur geta þeir einnig haft áhrif á fjölskyldu starfsmannsins og samfélagið í heild. Í ljósi þessa hafa allir hag af heilsueflingu á vinnustöðum. Mikilvægt er að á sem flestum vinnustöðum sé heilsuefling sjálfsagður þáttur í stefnu vinnustaðarins og unnið sé markvisst að henni.


Heilsuefling á vinnustað getur t.d. falist í:

  • öruggu og aðlaðandi vinnuumhverfi
  • skýrum boðleiðum og jákvæðum samskiptum
  • vinnureglum og viðbragðsáætlun um varnir gegn áfengis- og vímuefnanotkun
  • að bjóða upp á heilsusamlegan mat á vinnustaðnum
  • hvatningu til almennar líkamsræktar og hreyfingar eins og að ganga eða hjóla í vinnuna
  • göngutúrum í hádeginu
  • ýmsum átaksverkefnum og hópefli

Hægt er að vinna að heilsueflingu á nokkrum stigum og er árangursríkast ef heilsueflingarstarf tekur til allra þessara stiga:

  1. Byggja upp heilsusamlegt og styðjandi vinnuumhverfi þar sem stefna og hlutverk eru skýr, þjálfun og fræðsla fer fram og stjórnunarhættir fela í sér stuðning við starfsfólk
  2. Skoða áhættuþætti í vinnuumhverfi og bregðast við þeim. Með þessu má koma auga á þá einstaklinga og þær vinnuaðstæður sem þarf að sinna sérstaklega og þarfnast sérstakra aðgerða.
  3. Mikilvægt er að taka tillit til ólíkrar vinnufærni fólks og stuðla að því að einstaklingar með minna úthald eða færni haldist á vinnumarkaði og komi aftur til starfa eftir slys eða veikindi, hvort sem þau eru andleg eða líkamlegs eðlis.

Sjá ennfremur leiðbeiningar á síðu Vinnueftirlitsins:

Á vef Vinnueftirlitsins er einnig að finna upplýsingar um viðurkennda þjónustuaðila á sviði vinnuverndar

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf