Virk Starfsendurhæfingarsjóður

Er starfsgeta þín skert vegna heilsubrests? Ef svo er þá getur þú leitað aðstoðar hjá ráðgjafa sjúkrasjóðs stéttarfélagsins þíns. Ráðgjafinn aðstoðar þig

Getur VIRK hjálpað þér?


Er starfsgeta þín skert vegna heilsubrests?

Ef svo er þá getur þú leitað aðstoðar hjá ráðgjafa sjúkrasjóðs stéttarfélagsins þíns. Ráðgjafinn aðstoðar þig við að efla færni þína og vinnugetu.  Þjónustan miðar að því að efla styrkleika þína og draga úr áhrifum hindrana á vinnugetu og þátttöku á vinnumarkaði.

  • Hjá ráðgjafanum færðu ráðgjöf og hvatningu sem tekur mið af þínum aðstæðum.
  • Ráðgjafinn metur möguleika þína, bæði út frá heilsufarslegum og félagslegum þáttum.
  • Þú færð aðstoð við gerð þinnar eigin áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og starfsendurhæfingu. Ráðgjafinn aðstoðar þig við að fylgja þeirri áætlun eftir.
  • Ef þú ert lengi frá vinnu vegna veikinda aðstoðar ráðgjafinn þig við að vera í reglubundnu sambandi við vinnustaðinn og hjálpar þér við gerð áætlunar um að snúa aftur til starfa.
  • Ertu ekki viss um réttindi þín og hvaða þjónustu þú átt rétt á? Ráðgjafinn getur aðstoðað þig við að fá svör við slíkum spurningum.
  • Ef þörf er á aðstoð frekari sérfræðinga til að auka starfsgetu þína sér ráðgjafinn um að útvega þá þjónustu sem þú þarft á að halda.  Dæmi um það er aðstoð frá sálfræðingum, iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum, læknum, félagsráðgjöfum og náms- og starfsráðgjöfum.

Ráðgjafinn veit hvernig þú, atvinnurekandi þinn og ýmsir fagaðilar geta unnið saman að því að auka starfshæfni þína. Nýttu þér þessa fræðslu og ráðgjöf.  Margir hafa verið í sömu sporum og þú, en hafa bætt starfsgetu sína og lífsgæði verulega með aðstoð ráðgjafa og sérfræðinga á vegum Starfsendurhæfingarsjóðs. 

Þjónustan er þér að kostnaðarlausu og hún er miðuð út frá þínum þörfum og skipulögð í góðri samvinnu við þig. 

Ef starfsgeta þín er skert vegna heilsubrest þannig að þú getur ekki sinnt starfi á vinnumarkaði hvetjum við þig til að hafa samband við ráðgjafa.

Hérna finnur þú ráðgjafann þinn


Trúnaður og öryggi
Við leggjum áherslu á trúnað og öryggi.  Hjá Starfsendurhæfingarsjóði og hjá ráðgjöfum stéttarfélaga um allt land er farið með allar upplýsingar um einstaklinga sem trúnaðarmál og í samræmi við ákvæði laga og reglna um persónuvernd.  Strangar öryggisreglur gilda um öll vinnuferli, upplýsingaöflun, meðhöndlun og vistun gagna.

 


Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf