Flýtilyklar
Bjarki Ingi Karlsson
Hjálp úr kjarna kerfisinsBjarki Ingi Karlsson var steypubílstjóri hjá BM Vallá. Sumarið 2008 fékk hann svæsna lungnabólgu og var haldið sofandi á gjörgæslu í fimm vikur. "Það var undarlegt að vakna úr þeim svefni um miðjan september. Mér leið eins og ég hefði sofið í 2-3 daga, en þá voru það fimm vikur, góðærið mikla var alveg horfið, bankakerfið var að leggjast á hliðina, starfið mitt að gufa upp eins og byggingariðnaðurinn allur og allir mínir vöðvar og styrkur virtust hafa runnið niður í dýnuna. Ég var bara slytti og stóð ekki undir sjálfum mér."Veitti ekki af veikindadögunum Bjarki var útskrifaður af Grensás fyrir jólin 2008. Hann segir það hafa verið mikil viðbrigði. „Ég var búinn að vera undir nánu eftirliti mánuðum saman, en svo var ég bara allt í einu kominn heim og það var engin eftirfylgni. Ég fór til sérfræðinga af og til, en það var ekkert endurhæfingarprógramm eða neitt slíkt. Líklega hafa læknarnir vitað að ég myndi aldrei snúa aftur í fyrra starf; til þess þarf hreysti, þetta eru átök og stundum mikið álag. Sjálfur var ég enn bjartsýnn á að ná fullri heilsu.“ Fyrstur til World Class Bjarki tók ráðgjöf Kristínar fegins hendi. „Hún sendi mig til sjúkraþjálfara, sem sagði best að ég stundaði reglulega líkamsrækt. Ég fór að æfa í World Class og mér skilst að ég sé fyrsti fulltrúi Starfsendurhæfingarsjóðs þar, eftir að samningar tókust við líkamsræktarstöðina. Sjóðurinn tryggði mér aðgang að stöðinni og ég fór fimm daga í viku í líkamsrækt. Ég var eins og spýtukarl fyrst, en smám saman hef ég liðkast og náð meiri styrk og þoli.“
Smurbrauð og styrkur Hann segir að Kristín hafi leiðbeint sér þegar sjúkradagpeninga þraut. „Hún benti mér á að ég gæti fengið
endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun. Það var ljóst að það var talsvert í land með að ég væri vinnufær
og vafamál að ég geti snúið til fyrri starfa svo við Kristín ræddum það talsvert hvort ég ætti ekki að nota tímann og
huga m.a. að námi og kanna þá hvort unnt væri að gera það samhliða greiðslum frá Tryggingastofnun.“ Bjarki hefur haft ýmislegt fyrir stafni, annað en að stunda líkamsrækt af kappi til að ná upp fyrri styrk og þoli, en alvarleg lungnabilun eins og sú sem Bjarki fékk skerðir þolið gífurlega. „Til að gera eitthvað skemmtilegt fór ég til dæmis á námskeið í nóvember hjá Marentzu Poulsen og fékk innsýn í alvöru smurbrauðsgerð. Ég hef um fátt annað talað og vinir mínir eru sumir búnir að fá alveg nóg af vangaveltum um smurbrauð!“ Vill umgangast fólk Hann segir aðstoð Kristínar Waage ómetanlega. „Hún leysir vanda og ýtir á mig, sem skiptir ekki minna máli. Það er svo mikilvægt að fá hvatningu.“ |
|
„Það kom mér satt best að segja á
óvart að fá þessa hjálp innan úr kjarna kerfisins. Ráðgjafinn hefur hjálpað mér að fóta mig á ný og
vísað mér áfram á réttu staðina.“.jpg)




















Stærra letur
Minna letur
