Virk Starfsendurhæfingarsjóður

Starfshópur um andlega þætti í sérhæfðu mati Um miðjan september tók til starfa hópur sem mun skoða sérhæft mat VIRK, með tilliti til andlegra þátta í

Starfshópur um andlega þætti í sérhæfðu mati

Um miðjan september tók til starfa hópur sem mun skoða sérhæft mat VIRK, með tilliti til andlegra þátta í matinu.  Hópurinn mun skoða þá þætti sem í dag eru hluti af matinu, fara yfir erlendar rannsóknir á þessu sviði og skoða þekkta þætti sem geta skipt máli fyrir endurhæfingu.  Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á sérhæfða matinu benda til þess að þörf sé á að bæta andlega þætti í því.
Í hópnum eru Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir, Valgerður Baldursdóttir geðlæknir, Rúnar H. Andrason sálfræðingur, Davíð Vikarsson sálfræðingur og frá VIRK Sveina Berglind Jónsdóttir sálfræðingur og Smári Pálsson taugasálfræðingur.
Senda á Facebook

Úr veikindum í vinnu
Vinnum saman

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf