Fara í efni
Til baka
Líkamleg heilsa

Aðstoðin skipti sköpum

Aðstoðin skipti sköpum

Kristínu Ernu Ólafsdóttur var skyndilega kippt út af vinnumarkaðnum vegna veikinda. Hún er komin aftur til vinnu og þakkar aðstoðinni frá VIRK hversu fljótt það tókst.

Krístin Erna Ólafsdóttir

Síðastliðið haust var Kristínu Ernu Ólafsdóttur skyndilega kippt út af vinnumarkaðnum vegna veikinda. Hún segir að sér hafi brugðið mikið. ,,Ég hef verið móttökuritari á geisladeild Landspítalans í tæp 35 ár og aldrei farið í veikindaleyfi nema bara í nokkra daga í einu,“ greinir Kristín frá. Hún er nú komin aftur til vinnu og þakkar aðstoðinni frá VIRK Starfsendurhæfingasjóði hversu fljótt það tókst.

,,Ég var búin að vera lasin frá því mars í fyrra. Ég komst varla út úr bílnum vegna ótrúlegra verkja. Ég var eins og gömul kona. Ég var með verki í lærunum, hnjánum, bakinu og hálsinum. Líkaminn var eiginlega allur undirlagður og ég horaðist mikið á þessu tímabili,“ segir Kristín.

Send heim í skyndi

Hún hafði greinst með húðkrabbamein fyrir um tveimur árum en fengið bata. Veikindin sem Kristín hefur barist við síðastliðið ár reyndust vera fjölvefjagigt. ,,Ég greindist í septemberbyrjun. Ég hafði pantað tíma hjá lækni en biðtíminn var langur. Vinnuveitanda mínum leist ekki á ástandið á mér og vegna aðstoðar hans komst ég fyrr að. Þegar rannsóknir höfðu leitt í ljós hvað var að mér var ég strax send heim og sett í sterameðferð.“

Að sögn Kristínar hringdi Soffía Eiríksdóttir, ráðgjafi hjá BSRB, í hana og boðaði hana í viðtal en Kristín er félagsmaður í SFR sem er eitt aðildarfélaga BSRB. ,,Ég vissi ekkert um þessa þjónustu þótt ég hefði heyrt getið um VIRK. Við spjölluðum saman um heima og geima og Soffía spurði hvað hægt væri að gera fyrir mig til þess að ég yrði í sem bestu formi þegar ég sneri aftur til vinnu. Við fórum yfir stöðuna og niðurstaðan varð sú að vatnsleikfimi og aðstoð frá sjúkraþjálfa myndi hjálpa mér. Það er jafnframt gott að hitta fólk sem er í sömu stöðu og maður sjálfur. Þetta hefur gengið rosalega vel og ég hef náð ótrúlegum árangri. Það er líka gott að einangrast ekki í veikindaleyfinu. Þá snýr maður sterkari til baka á ný.“

„Þetta hefur gengið rosalega vel og ég hef náð ótrúlegum árangri. Það er líka gott að einangrast ekki í veikindaleyfinu. Þá snýr maður sterkari til baka á ný.“

Auðvitað bregður manni

Kristín kveðst hafa haldið áfram að hitta ráðgjafann sinn. ,,Ég hlakka til þess að fara til hennar. Hún er stórkostleg manneskja. Við spjöllum um allt mögulegt. Það er ekkert vol og væl, heldur ræðum við um hvernig lífið gengur. Ég hef aldrei lent í neinu svona og auðvitað bregður manni. Það er skrýtið að vera ekki í vinnu.“

Áður en Kristín fékk upphringingu frá ráðgjafa stéttarfélags síns hafði hún reynt að styrkja sig með því að fara út að ganga þegar hún treysti sér og þegar veður leyfði. ,,Aðstoðin frá VIRK, sem er manni að kostnaðarlausu, skipti hins vegar sköpum varðandi endurhæfinguna. Ég var ekki í nógu góði formi fyrir veikindin. Ég hafði að vísu farið nokkuð reglulega í tækjasal á Landspítalanum í lok vinnudags en dró úr þeim æfingum vegna veikinda mannsins míns sem lést fyrir fjórum árum. Ég var ekki komin almennilega í gang á ný þegar ég veiktist sjálf.“

Nú er Kristín í hálfu starfi. ,,Ég fékk ekki leyfi frá læknunum til þess að fara strax í fullt starf. Reyndar hafði ég verið farin að hugsa um að minnka við mig vinnuna og fara í hálft starf þar sem ég er löngu komin á lífeyri. Það er alls ekki víst að ég fái að fara aftur í fulla vinnu en ég er mjög ánægð. Það er gott að vera komin aftur en maður verður að klára þennan veikindapakka. Ég er enn á sterum en það á að reyna að minnka skammtana smátt og smátt.“

Óþægilegt í fyrstu

Þar sem Kristín varð að hverfa frá störfum síðastliðið haust án nokkurs fyrirvara gat hún ekki kennt þeim starfsmanni sem fenginn var til þess að leysa hana af. ,,Viðkomandi varð þá að koma sér upp sínum eigin vinnureglum og það er ósköp skiljanlegt. Þetta er bara eins og hlutirnir ganga fyrir sig þegar fólk er lengi fjarverandi vegna veikinda. Mér fannst hins vegar svolítið óþægilegt fyrstu vikurnar eftir að ég kom til starfa á ný að kynnast öðrum vinnureglum í starfinu sem ég hafði gegnt í tæp 35 ár og sem ég hafði ekki átt þátt í að setja en ég er alveg sátt við þetta núna og fer bara eftir þessum nýju reglum. Þetta hefur bara gengið vel og það er gaman að fá að takast á við verkefnin á ný. Það var tekið frábærlega á móti mér. Og mig langar sérstaklega til þess að hrósa þjónustu stéttarfélagsins mín og VIRK,“ segir hún.

Getum við bætt efni síðunnar?

Hafa samband